Blanda - 01.01.1940, Blaðsíða 367
365
koma meðal niðja Ásgríms prests Guðbjarts-
sonar, þeirra sem fornskjölin (Dipl. Isl.) nefna.
Synir Ásgríms prests hafa verið: Erlendur,
Guðbjartur flóki, Indriði (líklega Indriði prest-
ur kópi (kopar?), faðir Hákonar, föður Ind-
riða, vestra) og Ögmundur prestur Ásgríms-
son nyrðra (bréf 1379), faðir þeirra Þórðar
prests, er fékk Bægisá 1430 og Hákonar (D. I.
IV, nr. 481, bls. 435) : Testament Margrétar
Bjarnardóttur (ekkju eftir Hrafn lögm. Guð-
mundarson), án efa frá árinu 1434). Synir
Hákonar hafa verið: Kolbeinn, Þorfinnur og
Ögmundur, sem allir koma við skjöl nyrðra, er
snerta Þorkel prest Guðbjartsson og niðja hans,
á 15. öld. Má ef til vill rekja ættir frá einhverj-
um þeirra lengra niður.
Böðvar Ögmundarson, Þorvaldssonar, Geirs-
sonar auðga, skólameistari á Hólum 1393, faðir
Magnúsar prests, líklega föður Guðólfs prests
(á Barði), var án efa skyldur Ásgrími presti
Guðbjartssyni. Þorvaldur vasi í Kristnesi hefir
verið bróðir Böðvars skólameistara, faðir Jóns,
föður þeirra Þorvalds á Reykjarhóli, Hákonar
á Vatnsenda og Hallberu konu Vigfúsar í Holti
í Fljótum, Þorsteinssonar þar, Magnússonar á
Grund i Eyjafirði, Jónssonar. Sonur Hákonar
hét Þorsteinn, og má rekja ættir frá honum. En
ég hygg, að Hákon á V'atnsenda hafi ekki ver-
ið sonur Jóns Finnbogasonar ins gamla, sem
menn hafa ætlað. Það virðist koma í bága við
síðari tengdir þeirra ætta.
Nafn Ögmundar Þorvaldssonar, Geirssonar
(D. I. VI, bls. 14), sem verið hefir samfeðri,
hálfbróðir frúar Halldóru Þorvaldsdóttur, er
fyrst hefir átt Þórður, sonur Kolbeins Auðkýl-