Blanda - 01.01.1940, Blaðsíða 373
371
dagsblað „Vísis“ 7. marz 1943, bls. 3 í 4. dálki),
— og einnig Ólafur prestur Kolbeinsson inn
ríki í Saurbæ (d. 1553)d) faðir Ara, föður
Ólafs, föður þeirra Bjarnar, Hróbjarts, Ara,
Jóns og Nikulásar (og Skafta). — En Björn
Ólafsson (bréf 1606—-50) hefir verið faðir
Skafta á Gullberastöðum 1703 (f. c. 1645), föð-
ur Ara (f. 1678), föður Þórólfs, föður Einars
bónda í Kalmanstungu, sem fjöldi manna er
frá kominn. Framætt Þórólfs Arasonar hefir
áður verið rangt rakin í ættatölum, Sýslum.-
æfum og víðar, en er hér leiðrétt, eftir nánari
rannsókn samtíðaheimilda.
Hallur, sonur Jóns langs, Þorkelssonar prests,
Guðbjartarsonar, bjó í Skörðum í Reykjahverfi.
Móðir hans og Sæmundar, sem kallaður var
,,Langsson“ af auknefni föður síns, var Guð-
rún dóttir Bjarnar á Einarsstöðum, Sæmund-
arsonar, Þorsteinssonar. Hallur kvæntist 10.
okt. 1463 í Skörðum Guðnýju Ólafsdóttur
(Magnússonar?) ; þeirra synir voru meðal ann-
arra: a) Ásmundur, án efa faðir Odds í Skörð-
um (samkvæmt athugun okkar Braga ættfræð-
ings Sveinssonar), föður Hrafns í Skörðum.
Annar son Ásmundar hét Hallur, og voru þeir
bræður fleiri, og er þaðan fjölmenni komið.
b) Hálfdan Hallsson. c) Jón Hallsson og enn
fleiri. Miklu fleiri ættkvíslir má nú rekja frá
Mýramönnum, bæði í karllegg og í blandna
liðu. En þó kunni enginn að rekja ættir sínar
til Mýramanna í beinan karllegg, svo að skjal-
fest yrði eða knérunnar taldir með nöfnum,
1) í Alþb. IV, bls. 555, virðist dánarár séra Ölafs
talið 154.6. En það kemur illa heim við önnur skjöl frá
þeim tímum og' eldri. Máske ártalið ætti að vera 1553?