Eimreiðin


Eimreiðin - 01.06.1922, Side 22

Eimreiðin - 01.06.1922, Side 22
150 HAKARLAVEIÐIN eimreiðin Þá er áttæringurinn var kominn í framfjöru, hélt Þórður til bæjar. Bað hann áður menn sína að búast sem skjótast til ferð- ar, því að nú fengju þeir einusinni að eiga svo um munaði við erkióvin sinn hákarlinn og gjalda honum margt grátt gamanið. Þegar fulldimt var orðið, kom Þórður á ný til manna sinna. Fljótlega hafði það borist milli búðanna, að eitthvað mundi á seiði hjá Þórði. Allir voru illa haldnir af forvitni. Hákarlaveiði? Nei, alveg ómögulegt. Hákarl var ekki að mun í firðinum um þetta leyti, enda ekkert gert til að lokka hann inn, því að engi þótti hann aufúsugestur, meðan þorskveiðar voru stund- aðar. Ekkert hafði verið búið undir hafróður, svo að slíkri för gat ekki verið til að dreifa. Um kaupstaðarferð gat alls ekki verið að ræða, því að ekki hefði Þórði átt að vera nein laun- ung á slíku. Og ekki þurfti til þess þrjár skipshafnir — oS nóg var að hafa tvær í hákarlalegu. Eitthvað var bogið við þetta. Þrjár skipshafnir í besta og blíðasta veðri eitthvað út í fjörðinn — það var víst einsdæmi og síst að undra þótt mönn- um þætti það kynlegt. — ]æja piltar, sagði Þórður, þegar hann kom fram í fjör- una, þar sem hópurinn stóð — eruð þið nú tilbúnir? — Já, við erum víst allir tilbúnir, sagði Andrés formaður. Mannþyrpingin í fjörunni varð þéttari og þéttari, uns allir vermennirnir voru þarna saman komnir. Hvíslingar fórir um allan hópinn, og ein ágiskunin kom fram annari fjarstæðari. Þótt einhver hefði grun um hinn sanna tilgang fararinnar, Þa þorði sá hinn sami síst að ympra á því. — Ertu á leið í hákarlalegu, Þórður? mælti Gísli á Eyn og skyrpti út úr sér munntóbakstuggu. — Ojá, sagði Þórður, sem var að troða neglunni í bátinn. — »Ok veidduð þér þá menn«, mælti Njáll forðum — eða hvort vilt þú at ek Ijái þér fararbeina nokkurn at þessu sinni ? — Vil ek víst, sagði Þórður og glotti. Virtist honum eið1 vel um gefið hjal Gísla, þótt tæki hann þann kostinn, a^ bregða á hið sama og hann. Vermennirnir stóðu hljóðir umhverfis meðan þeir áttu tal saman, Gísli og Þórður. En tvíræð voru augnatillitin, er skut- ust undan hattbörðunum í dimmunni.

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.