Eimreiðin


Eimreiðin - 01.06.1922, Page 23

Eimreiðin - 01.06.1922, Page 23
eimreiðin HÁKARLAVEIÐIN 151 Qísli þaut til búÖar sinnar og bátnum var hrundið fram. Bað Þórður menn sína bíða í fjörunni, uns Gísli kæmi og hafa hönd á bátnum. Sjálfur settist hann í skut, tók stýri og stjórnvöl og lagði hvorttveggja þvert um kné sér. Innan skamms kom Gísli og var þá ýtt á flot. Atta menn settust undir árar, en sex sátu auðum höndum. Þórður stýrði. Báturinn skreið fram úr víkinni, og Þórður vék honum inn a við. Hann stóð upp og svipaðist um. Þarna greindi hann kolsvart ferlíki. Það var botnvörpungurinn. Þá var stefnan I^ndin og Þórður settist niður. — Látið ekki ýskra í keipunum, sagði Þórður lágt, en þó svo skýrt, að allir í bátnum heyrðu orð hans. Þungur hreim- ui' var í röddinni. Haldið var nú áfram um hríð, án þess að nokkur mælti orð frá vörum. Logn var og loft skýjað. Við og við blikaði stjarna 1 i'ofi. Alt var hljótt. Að eins áraglamið, hóglátt og hvíslandi, rauf þögnina, sem var ögrandi og óvenjuleg. Margir menn róa ekki steinþegjandi leiðar sinnar, nema eitthvað mikið sé ú seiði. Brátt var leiðin því nær á enda. Að eins nokkrir faðmar v°ru eftir að botnvörpungnum. Ekkert ljós var þar sjáanlegt °9 engin minsta hreyfing. Enginn mælti nú orð frá vörum í bátnum. (Jndarleg tilfinn- ln9 hafði gripið hásetana. Þeir höfðu nú fengið fulla grein fVrir því, sem þá hafði áður grunað. Og sambland af kvíða, ®fintýraþrá og hefnigirni fjötraði nú hug þeirra. Hjörtu toirra börðust ótt og títt undir óhreinum strigatreyjunum, þeir flrukku saman við hvert hið minsta hljóð, þeim var erfitt um andardráttinn og augun flöktu fram og aftur. Þórður gaf þeim bendingu um að hafa hljótt um sig og hvesti nú augun í áttina tif skipsins. Alt í einu sást hreyfing á framþiljunum. Maður hljóp aftur eft'r, áleiðis til stjórnpallsins. Þórður stóð upp, lét Gísla taka við stjórninni og þreif ár af beim hásetanum, sem næstur réri á stjórnborða. Augu hans ^ndruðu, og hreyfingarnar voru snöggar og fjaðurmagnaðar. tiann hóf upp árina, miðaði henni eitt augnablik og skutlaði enni síðan í áttina til skipsins. Maðurinn, sem kominn hafði

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.