Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1922, Side 28

Eimreiðin - 01.09.1922, Side 28
220 TVÍS0NGSLISTIN Á ÍSLANDI EIMREIÐirt kalvínsku kirkjunni á Hollandi, Þýskalandi og í Sviss hjá þýskumælandi fólki. Frá Goudimel er það enn fremur að segja, að einn af lærisveinum hans var hinn frægi Palestrina (Giovanni), sem mestur er allra tónskálda kaþólsku kirkjunnar (f 1594). Með honum náði lagfræðin frakknesk-niðurlenska hámarki sínu. Allir þeir, er nú á dögum hafa reynt að færa kirkjusönginn í fornari og veglegri búning, hafa numið staðar, er þeir komu að honum. Það er síðast sagt frá Goudimel, að hann hafi verið niyrtur í Lyon í Frakklandi, ásamt fleiri trúbræðrum sínum, Bartóló- meusnóttina minnilegu (1572). Hve nær barst lagfræðin út hingað? Alt virðist benda til þess, að hún hafi komið hingað frá Danmörku með hinum dönsku skólameisturum, er biskupar vorir fengu til skólanna á Hólum og í Skálholti fyrst framan af. Og telja má það víst, að lagfræðin eða diskant-söngurinn hafi verið kendur í Skálholtsskóla á dögum Gísla biskups Jónssonar (f 1587) og Odds biskups Einarssonar (f 1630). A dögum Gísla biskups kendi Erasmus Willadtsson, jóskur að ætt, diskantsöng; hann var skólameistari á árunum 1551 — 64. Síðan varð hann prestur að Görðum á Alftanesi, að Odda 1569 og Breiðabólstað í Fljótshlíð 1576 (f 1591). Hann mun hafa verið einn hinn merkasti kennimaður sunnanlands á sín- um tíma. Biskupsembættinu í Skálholti gegnir hann frá því er Gísla biskup leið og til þess er Oddur biskup tók við (1589), og þótti mörgum hann vel fallinn til biskupstignar, ef hann hefði eigi verið danskur að ætt. A dögum Odds biskups er sérstaklega getið eins söng- kennara, Sigurðar Stefánssonar (f 1594); hann var skóla' meistari í Skálholti. Oddur biskup var sjálfur manna söngfróðastur á sínum tíma og smekkvís í þeirri grein. Guðbrandur biskup viður- kendi það líka með því, að hann gaf út hina fyrstu messu- söngsbók á íslensku: Gral/arann (Graduale), í samráði við Odd biskup (1594). Oddur biskup ritaði formála fyrir fyrstu útgáfunni, og er það hið elsta ágrip af almennri kirkjusöngs-

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.