Eimreiðin


Eimreiðin - 01.12.1922, Qupperneq 70

Eimreiðin - 01.12.1922, Qupperneq 70
326 SÆMUNDUR FRÓÐl EIMREIÐIN Þannig sjáum vér hylla undir Sæmund af hverju ieiti, en hann hverfur jafnharðan aftur án þess að vér getum áttað oss á honum, nema stærð hans. Kona Sæmundar var Guðrún, dóttir Kolbeins Flosasonar lögsögumanns, og má af því sjá, að þjóðsögurnar um Guð- rúnu, eru komnar á fullkomna glapstigu. Henni er þar svo lýst, að hún hafi verið vinnukona í Odda og náð í Sæmund með því að nota sér óskastundina, en hrokast síðan upp af metorðunum svo að Sæmundur hafi orðið að geyma gömlu leppana af henni og sýna henni þá við tækifæri til þess að lægja í henni rostann. Sannleikskjarninn í þessum þjóðsögum ætti að vera sá, að Guðrún hafi verið af smáum ættum og það þótt undarlegt að hún skyldi ná að giftast Sæmundi, en þessu fer mjög fjarri. Það er ekki heldur rétt í þjóðsögunni, að þau hafi átt saman 7 syni. Þau áttu 4 börn, þrjá syni og dóttur eina. Þá er nú eiginlega lokið því, sem vér vitum um Sæmund fróða, og má það heita mögur eftirtekja um svo frægan mann. Hann fær auðvitað sömu ágætiseinkunnina ef minst er á klerk- dóm hans eins og fyrir annað. Hann er talinn mesti klerkur, sem verið hafi á íslandi. En með því er þó líklega átt fremur við lærdóm hans og lesningu heldur en prestskapinn sérstak- lega. Viðurnefnið »hinn fróði« er ugglaust haft um hann • sömu merkingu og það er haft um nokkra menn aðra í forn- öld, og látið tákna sagnafróðleik sérstaklega, en þó mun það, er til Sæmundar kom, hafa þótt við eiga yfirleitt. En svo kemur þetta einkennilega, sem tæpt hefir verið á hér að framan, að þrátt fyrir alla hans ágætu hæfileika, höfðings- skap, rausn og prýði, vitsmuni og firna lærdóm, og hvað það nú er fleira, sem hann hafði til brunns að bera, þá er frægð hans hin mikla af annarri rót runnin. Hann hefir sem sé orðið frægastur fyrir það, sem hann hafði ekki til að bera. Þetta eru hin einstöku forlög Sæmundar fróða. Hann verður svo frægur af göldrum sínum og kunnustu í þeirri íþrótt, að af þeim sökum þekkir hann hvert mannsbarn á landinu. Og í raun og veru er þetta ofur einfalt mál, ef litið er a það, sem að framan er sagt. Eins og áður er sagt Iifði gumið eitt um Sæmund, en saga
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.