Eimreiðin - 01.07.1924, Qupperneq 8
200
JOHN MILLINGTON SVNGE
EIMREIÐIN
blundi. írskum bókmentum bjargaði leikhúsið, en það var að
eins forspil að stjórnarbyltingunni. Irland mundi enn vera
bundið á klafa katólsks afturhalds ef Synge hefði aldrei farið
til Araneyja og fundið þar sína eigin sál úti í auðn náttur-
unnar. Manni dettur ósjálfrátt í hug að spyrja, hvaða stefnu
bókmentir og menning Norðurálfunnar hefðu tekið, ef Ibsen
hefði leitað til Færeyja eða Vestmanneyja í stað þess að fara
til Þýzkalands og Italíu, þegar óyndið út af lífinu í Kristjaniu
heltók hann. Mundi hann þá hafa ritað sjónleik sinn Keisari
og Gali/ei? Hvernig mundu áhrifin af dvöl hans á þessum
fjarlægu eyjum hafa lýst sér í skáldskap hans? Mér er naest
skapi að svara með þá endurfæðingu fyrir augum, sem nú a
sér stað í skozkum bókmentum. Það er alls ekki ólíklegt, að
einhver af oss, sem hlutdeild eigum í þessari hreyfingu og
erum að reyna að stjórna henni í rétta átt, verði fyr eða síðar
knúinn innri þörf til að hverfa burt frá Glasgow eða Edinborg
og leiti til hinna hrjóstrugu Suðureyja til þess þar að finna
sjálfan sig.
Synge var lengi að komast til fullrar meðvitundar um köll'
un sína. Fjórum sinnum dvaldi hann á Araneyjunum og ritaði
um áhrifin þaðan bók þá hina prýðilegu, sem er mikilvaegur
þáttur í starfi hans. Bókin um Araneyjarnar kom út 1907
eftir að áður höfðu birzt smágreinir og brot úr ritinu í helztu
blöðunum, svo sem í Manchester Guardian. I fyrstu útgáfu
bókarinnar birtust nokkrar myndir eftir listvin skáldsins W. B-
Veats. Fékk bókin við það enn meira gildi. Myndir þessar,
sem Yeats dró upp af lífinu í vesturhéruðum írlands, eru sér-
kennilegar og sannar, og þurfa engra skýringa við. Þeir
Synge og Yeats höfðu góð áhrif hvor á annan. Báðir voru
gæddir afburðagáfum og tilhneiging sú til kýmni, sem svo
mjög gætti í lundarfari beggja, kom báðum vel er lýsa skyldi
lífinu eins og það kom þeim fyrir sjónir. Auk þess hefur
Veats látið eftir sig lýsingu af félaga sínum, sem varpar .skýru
ljósi á hina frjóu en dulu skapgerð hans. Sem stendur eru
tveir listamenn að rannsaka lífið í héruðum þessum, og aettu
þeir að verða sjálfkjörnir til þess að sjá um myndirnar >
skrautútgáfu af ritum Synges. Starf þessara tveggja listamanna,
þeirra Paul og Grace Henry, er fremur andlegt skilningsafrek