Eimreiðin - 01.07.1924, Blaðsíða 43
BREZKA HEIMSSÝNINGIN
235
flotamiðstöð fyrir Breta í Asíu, ef þeir hugsa sér þar til
hemaðar.
Nýja-Sjáland (íbúatala 1V4 miljón) verður næst fyrir, áfram
eftir stígnum til vinstri. Sýningarhöllin er virðuleg og víðáttu-
^'kil, um 130 þúsund
ferfet, eða helmingi stærri
eir Malaya. Hér sjást af-
Urðir og atvinnuvegir,
^ógarhögg, ávaxtarækt,
Síísarækt og akuryrkja.
f^ælingatæki eru sýnd
fvrir kjöt, ávexti o. fl.
^erkilegt er að sjá
^aori-húsið, sem frum-
^Vggjar landsins hafa Malava-höllin.
telgt sögu þess á. — Við
annan enda Nýja-Sjálands liggur vatn eftir sýningasvæðinu
endilöngu. Eru á því skemtibátar til leigu og 4 brýr. Við hinn
enda vatnsins sézt Indland í fjarska og turnar þess. Til hægri
handar við vatnið liggur Ástralía og Kanada, en til vinstri
Listahöllin, Iðn-
aðarhöllin og
Vélahöllin, alt
mikilfenglegar
byggingar.
Listahöllin
kemur þá næst
til vinstri. Fræg-
ustu listamenn
M'* c'i j u • • °2 húsagerðar-
Ny|a-S]alands byggingin. . „
meistarar Breta
t'nfa unnið að því að gera hana sem fullkomnasta. Höllin er
e'ns og musteri. Málverk eru þar á öllum veggjum og mynda-
siVttur á dreif á gólfi, hvaðanæva að úr Bretaveldi. Þar eru
°9 uppdrættir borga og húsa ýmissa stétta og húsgögn í heilar
stofur á ýmsum tímum, þar á meðal auðvitað fyrir 1924, eftir
að samkepni hafði ráðið úrslitum um list þessa líðandi árs.
^arna er leikhúsaútbúnaður og aðferðir á ýmsum tímum og