Eimreiðin - 01.07.1924, Blaðsíða 50
242
BREZKA HIEMSSÝNINGIN
heyrðist ekki mannsins mál fyrir fagnaðarópum og formælinS'
um áhorfendanna eftir því, hvernig leikurinn gekk. Síðustu
5 mínúturnar hertu New-Castlemenn sig og skoruðu tvó
mörk. Fagnaðarópinu ætlaði aldrei að linna og það jafnt fra
fylgismönnum þeirra sem andstæðingum. Foringjar flokkanna
tókust í hendur og foringi New-Castlemanna kysti markvörð
flokks síns. Þegar prins nokkur rétti honum verðlaunabikarinn
gat hann engu svarað vegna geðshræringar. Ahorfendurnir, sem
nálægt voru, reyndu að snerta þessa frægu knattleikara. Loks-
yfirgáfu þeir leiksviðið með svartan kött í fararbroddi, sem
þeirhöfðu haftmeð
sér frá New-Castl&
til heilla, og undir
dynjandi fagnaðar-
ópum og lúðraþyt-
í New-Castle var
þeim síðar tekið af
bæjarstjórn og öll'
um borgarbúum
sem frelsurum
borgarinnar.
Sex vikur í júh
og ágúst er haldinn hér á íþróttasviðinu heimsveldisleikur eða
sýning í sex þáttum, er sýnir fæðingu, vöxt og nútímaástand
Bretaveldis.
Alt sumarið verða í Stadium margvíslegar sýningar og leikir,
hlaup og veðreiðar, kúasmalakappreiðar, tamningar hesta,
hnefaleikar, skátasýningar og hersýningar.
Skemtigarðurinn. I hinum enda Wembleys liggur skemti'
garðurinn, sem kostað hefur eina miljón sterlingspunda. Síðan
hluta dags er hér mikill mannstraumur inn um hliðið, þar sem
eru á verði sitt hvoru megin tveir trérisar í rauðum her-
mannabúningi. Fánar eru allsstaðar á stöng, og byggingarnar
eru marglitar og auðþektar frá öðrum húsum í Wembley. Hér
eru allskonar leikir og skemtanir, IV2 kílómetra langur akstur
þráðbeint upp og niður á fleygiferð í smávögnum, þar sem
gesturinn er rígbundinn, sýning á fegurstu konum heimsins
ljóslifandi frá Helenu í Tróju og Cleopötru fram til fröken
Hringleiksviöið í Wembley. (Stadium).