Eimreiðin - 01.07.1924, Síða 54
246
HUGLÆKNINGAR
Coués af eigin sjón og reynd. Meðal annars kemst hann
þannig að orði:
»Uppgötvanir Coués eru afar merkilegar, og það v®1"1
ófyrirgefanlegt glapræði ef kristnir kennarar og fræðarar
færðu sér þær ekki í nyt. Meinið er, að aðferð hans er færð
til verri vegar og misskilin, svo að almennast gera menn ser
rangar hugmyndir um hana...........Mér virðist engum standa
nær en kristnum prestum að hagnýta þær hugmyndir, sem
Coué flytur. Og tækju þeir upp slíkar lækningar, sem einn
þátt sálgæslustarfs síns, mundu þeir njóta þeirra sömu hlunn-
inda og Coué nýtur, að þurfa ekki að taka fé fyrir«.
Sjálfur hefur Coué aldrei tekið neitt fyrir lækningar sínar.
Hann hefur afdráttarlaust neitað að taka við fé frá sjúklingun-
um alt frá því fyrsta, að hann byrjaði á lækningastarfi sínu,
og telur hann það mikilvægt atriði, að því er snertir árang-
urinn. Það vekur traust sjúklinganna, segir hann, þegar þeir
vita, að engin eiginhagsmunavon felst að baki Iækningatil-
raununum. Sé tekið fé af sjúklingunum vekur það tortrygn1
um að lækningarnar séu framdar í ábataskyni og veikir traust
sjúklinganna.
Fyrir rúmum tveimur árum var Coué þvínær algerlega
óþektur maður annarsstaðar en í ættborg sinni, Nancy, þar
sem hann hefur nú lækningastöð sína. En í júlí 1921 birtist
grein um hann í einu af stórblöðum Parísar. Síðan hefur
vegur hans stöðugt aukist, og er hann nú orðinn heimsfrægu1"
maður. Fjöldi frægra lækna og vísindamanna víðsvegar að hafa
streymt til Nancy til að kynnast lækningum Coués. Og menn
undrast mjög þann árangur, sem fengist hefur með aðferðum
hans. Það sem einkennir mest lækningastöðina í Nancy er heil-
næmið, sem andrúmsloftið þar er þrungið af. Sjálfur er Coué
framúrskarandi lífsglaður maður og kátur, með ótakmarkaða
trú á mátt hughrifanna og gæddur afburða hæfileikum til ein-
beitingar hugans.
Höfundur fyrnefndrar greinar skýrir frá því, að þann stutta
tíma, sem hann dvaldi við lækningastöð Coués í Nancy, hafi
komið þangað fjöldi sjúklinga frá Englandi, Skotlandi, írlandi,
Bandaríkjunum, Norðurlöndum, Suður-Afríku og jafnvel alla
leið frá Ástralíu. Vóru þeir haldnir allskonar sjúkdómum svo