Eimreiðin - 01.07.1924, Qupperneq 80
272 FRÆNDUM SÍÐU-HALLS SVARAÐ eimREID,n
»ok gefst þú honum þá í dag með guði«. »Þat vil ek þá t'*
skilja«, segir Hallr, »at þú heitir mér því fyrir hann, at hann
sé þá fylgjuengill minn«. »Því mun ek heita þér«, segir Þang'
Brandr. Tók Hallr þá skírn ok öll hjú hans«.
Þótt ekki sé frekara skýrt frá ræðum þeirra Þang-Brands
má nærri geta að þetta hefur ekki verið í fyrsta skifti, er
þeir áttu tal um trúmál. Hallur rasaði ekki fyrir ráð fram-
Njála lýsir honum svo: »Hann var vitr maðr ok góðgjarn4-
Viðskifti hans við Þang-Brand bera vott um, að svo hef-
ur verið.
Því fór fjarri, að Þang-Brandur væri ákjósanlegur braut-
ryðjandi nýrra kenninga. Hann var sekur um hvorttveggí3 •
þjösnaskap og skilningsleysi. En Hallur fjandskapast ekki við
hann að óreyndu. Hann gerir annað. Hallur tekur gesti þesS'
um með vinsemd og spyr um rök. Það er líkum Síðu-Halls
að þakka, að nýjar kenningar fá numið lönd.
Þegar að landi koma nýjar kenningar, sem eitthvað er >
spunnið, verða viðtökur jafnan með þrennu móti. Fáein>r
gleypa við þeim hugsunarlaust. En sjaldnast er mikill slægnr
í þeim mönnum. Þá skortir fótfestu. Og ef eitthvað hvessir
um kenningarnar, falla þeir oftast eins snögglega frá þeinl
og þeir hurfu að þeim áður. Hinir eru þó jafnan miklu fleirl’
er sýna nýjum kenningum fullan fjandskap, án viðkynningar-
Þeir eru arfþegar Berunesbræðra. Þeir vita það eitt, að eitt'
hvað nýtt er á ferðum og bannfæra svo út í bláinn. í þriðl3
flokknum eru vitrir menn og góðgjarnir, sem gera hvorki að
gleypa við kenningum né að bannfæra þær viðkynningalaust-
Þeir eru andlegir frændur Síðu-Halls. Þeir sýna kenningum
gestrisni og grafast eftir rökum. Ef rökin eru fá og léttvæS-
vísa þeir þeim á bug, með kurteisi og stillingu. Ef rökm
reynast góð og gild, ganga þeir þeim á hönd eftir ýtarlega
umhugsun.
Það er talið, að guðspekistefnan fari með nýjar kenninga1"-
Við, sem stefnunni fylgjum, segjum, að þær séu í rauninm
gamlar, en auknar þó og endurbættar að ýmsu leyti. Eigi a^
síður eru ýmsar þeirra alger nýung þeirri kynslóð, er nú er
uppi. Og út hingað komu þær fyrir tveimur áratugum.
Þar sem þessar kenningar hafa gert vart við sig hér a