Eimreiðin - 01.07.1924, Blaðsíða 87
EIMREIDIN
FRÆNDUM SÍÐU-HALLS SVARAÐ
279
Sameiginlegu heimildirnar eru auðvitað góðar og gildar. En
a þeim hvíla að eins þær kenningar, sem ekkert eru frá-
þrugðnar kenningum trúarbragða og vísinda. En nýju kenn-
‘ngarnar, sem guðspekin hefur að bjóða og gefa henni eink-
um tilverurétt, virðast svo illa trygðar, að varla sé við þeim
þ’tandi. Eða er nokkurt verulegt vit í því, að hneigjast að
henningum, sem reistar eru á vitnisburði fárra manna?
Sjálfsagt finst sumum, að ekkert vit sé í því. Samt skulum
við ekki vera of fljót á okkur. Ef til vill eru sérkenningarnar
ekki ver trygðar en margar sameiginlegu kenninganna. Við
skulum reyna að bera þær saman í bróðerni og sjá hvers við
verðum vör.
H.
Aðan var getið nokkurra kenninga, sem sameiginlegar eru
uierkustu trúarbrögðum. En hvaða trygging er fyrir sannleika
þeirra kenninga? Langflestir af miljónamergðinni, sem þeim
trúir, telja helgiritin fulla tryggingu. En hvað eru helgiritin?
Ekkert annað en vitnisburður löngu látinna manna.
Hver átrúnaður hefur sínar sérkenningar, sem gera hann
Eábrugðinn öðrum trúarbrögðum. Kirkjutrúin, sem þið játið,
hefur og sínar. En hvaða heimildir hafið þið fyrir sérkenning-
Utu hennar?
Hefur guð sjálfur sagt ykkur frá því, að hann hafi sent
lesú Krist í heiminn til að frelsa syndugt mannkyn? Getið
þið vitnað um það af eigin reynd, að hann hafi verið Iagður
1 iötu, er hann fæddist? Sáuð þið meistarann fara um Gyð-
Hgaland og gera gott, með undursamlegum kraftaverkum og
Ur>dursamlegum kærleika? Heyrðuð þið hann kenna, að guðs-
r'ki væri hið innra með mönnum og hvetja þá til að verða
Edlkomna eins og faðir þeirra á himnum? Sáuð þið hann
riia á jörðina með fingri sínum, þegar bersynduga konan var
hrakin til hans eins og haukelt dúfa? Voruð þið nærstödd,
þegar hann var handtekinn, barinn af þrælum, þyrnikrýndur
°9 krossfestur? Voruð þið vitni að hugraun lærisveinanna, er
þeir hugðu alt glatað? Og sáuð þið fögnuð þeirra, er meist-
ar-inn birtist þeim aftur, í upprisudýrð sinni?
Nei, enginn ykkar sá þetta né heyrði. Þó haldið þið því