Eimreiðin - 01.07.1924, Qupperneq 93
Eimreiðin FRÆNDUM SÍÐU-HALLS SVARAÐ 285
ekki eins og Leadbeater. En lögun »aurunnar« er eins í bók-
um þeirra beggja. Er munurinn einkum í því fólginn, að Lead-
beater lýsir nákvæmar og fleiru en Kilner.
Dr. Annie Besant og Leadbeater gáfu út bók eina 1907,
er þau nefndu »Occult Chemistry*. Rit þetta lýsti árangri, er
°rðið hafði af dulskygnisrannsóknum þeirra, þeim, er lutu að
efnafræði.
1 bók þessari geta þau meðal annars um ófundið efni, er
Þau nefna »Occultum«. Þau skýra frá frumeindabyggingu þessa
efnis og segja, að hver kemisk frumögn þess sé gerð úr 54
eindum »ultimate physical atoms«, er þau kalla svo. En í
uetnisfrumögn séu þessi »ultimate atoms«, eða eindir, að eins
18. Fyrir því verði eðlisþyngd þessa efnis »Occultum« þrisvar
sinnum meiri en eðlisþyngd vetnis. Þau skýrðu frá, að efni
Þetta væri að finna í ýmsum málmtegundum, er þau tilgreindu.
Arið 1913 skýrði eðlisfræðingurinn frægi ]. ]. Thomson frá
Því, að hann hefði fundið nýtt frumefni, er hann nefndi bráða-
birgðarheitinu X 3. Það hafði hann fundið í mörgum hinum
sömu málmtegundum og frú Besant og Leadbeater kváðu í
vera »Occultum«. En mest var þó um það vert, að efni
Thomson’s hafði nákvæmlega sömu eðlisþyngd og þau frú
Besant höfðu sagt af eðlisþyngd »Occultum«. Engin tvö frum-
efni hafa sömu eðlisþyngd. Leikur því varla efi á, að hér er
eitt og sama efnið að ræða, það er þau frú Besant fundu
tteð dulskynjunum 6 árum áður en Thomson fann það með
eðlisfræðirannsóknum sínum ').
Hér skal nú staðar nema.
Og bezt er að taka það skýrt fram, að ekki hefur verið
ttdnst á þessi mál, til þess að reyna að gera lítið úr kenn-
lu2um kristindóms eða vísinda. Slíkt sé fjarri mér. Hitt var
heldur ætlanin, að benda á það, að allur þorri manna fylgir
óhikað kenningum, sem hann hefur engu meiri trygging fyrir
að sé réttar, en guðspekifélagar hafa fyrir sérkenningum stefnu
s>nnar. Hvarvetna eru þeir sárfáir sem vita, hvort sem ræða
er um kenningar kristindóms, vísinda eða guðspeki. Lang-
U Sbr. The Theosophist, March — April 1913.