Eimreiðin - 01.07.1924, Page 95
e’MReiðin frændum síðu-halls svarað
287
viljum við benda öðrum á þær og vara þá við, að úthýsa
þeim að óreyndu.
Vera má, að þar séu einmitt kenningar þær, sem reyn-
así ykkur bestur fylgjuengill upp brattann.
Jakob Kristinsson.
Andri hinn franski
— André Courmont. —
Við fundumst, er Evrópa eldi
og eitri um jörðina spjó,
í málstofu dálegra dísa
og dró’um af fótunum skó. —
í norðurljóss víðáttu veldi
þá vængjuðu hugirnir sig.
En Skinfaxi, skeifaður gulli,
fór skeiðmjúkur heiðríkju stig.
Vor hugur til Hindarfjalls stefndi,
að horfa á völundarsmíð —
á salinn, er biðlunum bægði
frá Brynhildi á ómuna tíð.
Því loginn, sem vilhallur vafðist
um valkyrju íbúðar-turn,
var okkur, sem ofurhug forðum,
með afbrigðum, ráðgátu spurn.
Þær sagnir frá óðulum alda
til okkar í bergmáli ná,
um gullið, sem Gjúkungum steypti
og Grímhildar stórræði flá;
um bálköst, sem Brynhildi týndi,
og beiskjuna í Goðrúnar sál —
þá undirrót ásælni og flærðar,
sem álfunni hleypti í bál.