Eimreiðin - 01.04.1937, Síða 68
188
ÝMISLEGT UM VERMENSKU Á 19. ÖLD
EIMREIÐIN
Fiskveiðarnar voru þá, eigi siður en nú, önnur megin-tekju-
lind þjóðarinnar, sem nálega hver maður jós af meira eða
minna. Bú manna voru yfirleitt lítil og afrækt, þvi svo að
segja allir karlmenn, er fermingaraldri náðu, fóru til vers að
vordögum og einnig margir á vetrarvertíð.
Það er viðfangsefni þessarar greinar að segja nokkuð frá
lifi manna og starfi í verinu á þessu tímabili, einkum á síð-
ari hluta aldarinnar eða svo langt aftur, sem elztu menn nú
muna. Er það alt miðað við Vestlirði og þá einkum Isa-
fjarðardjúp.
Síðan á landnámsöld mun ísafjarðardjúp hafa verið meðal
veiðisælustu íiskileita landsins. Um og fram yíir síðustu
aldamót áttu margir bændur hér um slóðir sexæringa og
minni skip, sem þeir héldu úti á vetrar- og vorvertíð og
voru þá oft sjálfir formenn. Nú er ekki einungis að slíkt sé
úr sögunni, heldur má það og lieita hrein undantekning að
finna það sveitaheimili, sem á mann við sjó, hvað þá bónda,
sem gerir út. Þessu valda einkum breytt veiðitæki og veiði-
aðferðir, og ef til vill nokkru þverrandi íiskignægð.
I vikunni fyrir páska hófst aðal-straumur úlróðrarmanna
vestur að Djúpi. Aðal-verstöðvarnar á vorvertíð voru þá
Bolungarvík og Hnífsdalur, en smærri veiðistöðvar voru
Arnardalur, Hafnir, Ögurnes, Gullhúsár, Jökulfirðir og Aðal-
vík. Á vetrarvertíð var eingöngu róið úr Bolungarvík og
Hnífsdal.
Til þessara staða sóttu menn af nálega öllum Vestfjörðum,
að norðan, og auk þess úr Strandasýslu, Barðastrandarsýslu,
Dalasýslu og jafnvel Húnavatns- og Skagafjarðarsýslum. Þó
var jafnan mest sókn utanhéraðsmanna úr Strandasýslu. Var
þá mannaferð mikil og gestanauð beggja megin Steingríins-
fjarðar-heiðar, i Staðardal og Langadal. Var það ekki eins-
dæmi þar í dölunum, að liýstir væru 5—10 menn á hverjum
bæ nótt eftir nótt um páskaleytið.
Venjulega löru vermenn í llokkum, 10—20 saman. Var þuð
létlara og þægilegra upp á llutning á farangri, sem dreginn
var á sleðum, ef þess var kostur, en ella borinn á bakinu.
Svo var þá talið, að vart væri það hlutgengur maður í skip'