Eimreiðin - 01.07.1946, Síða 17
E I M R E IÐIN
Júlí—september 1946 - LII. ár, 3. hefti
Við þjóðveginn.
14. október 1946.
INNTÖKUBEIÐNI fSLANDS í UNO.
Alþingi hefur hinn 25. júlí síðastliðinn samþykkt með 36
atkv. gegn 6 „að veita ríkisstjórninni heimild til þess að
s®kja um inntöku íslands í Bandalag sameinuðu þjóðanna
°ff takast jafnframt á hendur fyrir landsins hönd þær skyld-
ui‘, sem samkvæmt sáttmála bandalagsins eru samfara
þátttöku í því“. Átta þingmenn greiddu ekki atkvæði, en
tveir voru fjarverandi. Á sama fundi Sameinaðs alþingis var
Lelld, með 26 atkv. gegn 22, sú tillaga Hannibals Valdemars-
sonar að kref jast þegar í stað brottflutnings alls Bandaríkja-
hers héðan af landi burt. Alþingi var kvatt saman mánudag-
ion 22. júlí til þess að afgreiða heimildina til inntökubeiðn-
innar — og því frestað þegar að lokinni þessari afgreiðslu.
Bráður bugur var undinn að afgreiðslu þessa máls á sama
tíma sem fregnir bárust um fyrirhugaða frestun fundar
Sameinuðu þjóðanna í New York, þar sem - inntökubeiðni
íslands og fleiri þjóða skyldi tekin fyrir til endanlegs úr-
skurðar. Fundur þessi átti að hef jast í septemberlok, en hon-
l,m hefur nú verið frestað um heilan mánuð. íslenzka þjóð-
hefur átt mjög lítinn kost á að kynna sér rökin fyrir
boirri hraðsamþykkt alþingis frá 25. júlí að sækja þegar í
stað um inntöku í UNO. Þó verður að gera ráð fyrír, að all-
í^iikið hafi legið á. Sú skoðun, sem að vísu varð vart frá ein-
11 ni þingmanna, að þjóðin þyrfti að fá ráðrúm til að kynna
sér málavöxtu, hlaut lítið fylgi. Svisslendingar fóru sér hæg-
ar áður en þeir gerðust meðlimir Þjóðabandalagsins gamla
oftir heimsstyrjöldina fyrri (1914—’18). Þeir létu þjóðar-
^tkvæðagreiðslu fara fram um ntálið.
il