Eimreiðin - 01.07.1946, Blaðsíða 20
164
VIÐ ÞJÓÐVEGINN
eimreiðin
hér fyrst á land. Eigi að síður er hér eftir hópur brezkra
starfsmanna, sem eiga að vinna við völlinn enn um skeið.
Alþingi kom aftur saman 19. f. m., og fyrsta málið, sem
lagt var fyrir það, var uppkast að samningi við Bandaríkin
ásamt tillögu til þingsályktunar um heimild fyrir ríkisstjórn-
ina til að gera samning við þau um niðurfellingu hervernd-
arsamningsins frá 1941, o. fl. Vökumannsáhugi þeirra, sem
minnst veður gerðu út af því mikilvæga skrefi, er þingið tók
með því að æskja inntöku íslands í Bandalag sameinuðu þjóð-
anna, enda þótt áður hefðu talið sig því andvíga, brauzt nú
fram með miklum krafti út af samningsuppkasti þessu. —
Áróðursvélin gegn því var sett af stað með þeim hávaða, að
heyrðist of allar jarðir. En sá vilji þjóðarinnar að fá full
umráð yfir Keflavíkurflugvellinum, með hagkvæmri sam-
vinnu við þá þjóð, sem látið hefur gera hann og rekið til
þessa, sigraði í málinu. Áróðurinn gegn þessari samvinnu
hjaðnaði, og andúðin gegn vinsamlegri sambúð fslendinga við
Breta og Bandaríkjamenn hefur reynzt eiga sér fáa formæl-
endur. Að vísu féllu mörg köpuryrðin í umræðunum úm mál-
ið. Gerðust menn gunnreifir um skeið, svo lá við meiðingum.
Samningsuppkastið var til meðferðar í þinginu hálfan mán-
uð, og voru gerðar á því nokkrar breytingar til bóta, af meiri
hluta utanríkismálanefndar. Aldrei var lögð fram nein úr-
lausn á því, frá andstæðingunum, hvernig hægt væri fyrir
oss fslendinga að taka þegar í stað við Keflavíkurflugvellin-
um að fullu og öllu og reka hann án utanaðkomandi aðstoð-
ar. Samningsuppkastið var samþykkt á alþingi 5. þ. m., og'
er þar með gengið fyrst um sinn frá rekstri og umráðuni
þeirra tveggja flugvalla, sem gerðir voru hér af herstjórn-
um Breta og Bandaríkjamanna í styrjöldinni, þannig að þeú'
eru nú báðir eign íslenzka ríkisins, með nokkrum ákveðnum
skilyrðum næstu árin. Eigi samningar sem þessir að verða
tilefni áróðurs og æsinga í þjóðfélaginu, byggist slíkt á „van-
mati á stöðu íslands sem sjálfstæðs ríkis og röngum hug'-
myndum um eðlileg samskipti þjóðanna“, eins og komizt ei
að orði í hinu ítarlega áliti méiri hluta utanríkismálanefnd-
ar í flugvallarmálinu. Er nú mest undir oss sjálfum koniið>