Eimreiðin - 01.07.1946, Side 34
eimreiðin
ísland 1945.
STUTT YFIRLIT.
VEÐRÁTTAN á síðastliðnu ári var yfirleitt mild um land allt.
Grasspretta reyndist í meðallagi sunnan lands og vestan, en góð
norðan og austan lands, enda varð nýting ágæt í síðarnefnduin
landslilutum, einkum þó á Norðausturlandi. Úrkomur voru aftur
á móti allmiklar um sláttinn á Suður- og Vesturlandi. Veðráttan á
Norðaustur- og Austurlandi yfir sumarið og liaustið var með af-
brigðum góð. Meðalliiti ársins var í Reykjavík 6,1 st. eða 1,2 st. vfir
meðallag, en í júli var liann 12 stig eða 1 st. yfir meðallag.
LANDBtJNAÐURINN tók í ýmsu framförum á árinu, að því
er snerti notkun búvéla. Um 200 bændur eignuðust dráttarvélar —
og auk þess ýms búnaðarsamtök stærri dráttarvélar. Með vélurn
þessum, sem fluttar voru inn frá Bandaríkjunum, fylgdu að jafn-
aði einbverjar nýjar vinnuvélar, og befur þetta flýtt búnaðarfrain-
kvæmdum og sparað fólkshald, þar sem vélunum verður við
komið.
Annars gekk öllu betur en áður að fullnægja eftirspurninni
eftir kaupafólki. Ráðningarskrifstofa landbúnaðarins starfaði frrt
sumarmálum til loka júlímánaðar. Vikukaup karla um sláttinn
var algengast eins og í fyrra kr. 275—300, og kaupakonur höfðu
um sama tíma kr. 175—200 á viku. Um 30 Færeyingar voru ráðmr
bingað til landbúnaðarstarfa yfir sumarið.
Sauðfjárslátrun varð öllu meiri en árið áður. Meðal-skrokkþungi
dilka varð 13,85 kg. (14,32 kg. árið 1944). Slátrað var 345.01-^
dilkum (1944: 333,673) og 44.380 fullorðins fjár (1944: 39.263)-
Kjötmagn varð 5549 tonn (1944: 5637 tonn). Út voru flutt af
kjötframleiðslu ársins 1944 263 tonn af freðkjöti og 179 tonn af
saltkjöti fyrir 1 millj. 385 þús. kr., en 5195 tonn seldust innan
lands. Freðkjötið seldist í Englandi, en saltkjötið var gjöf tn
Noregs, keypt fyrir samskotafé til hjálpar bágstöddum Norð-