Eimreiðin - 01.07.1946, Blaðsíða 39
eimreiðin
ÍSLAND 1945
183
-vegi. 1 Austurlandsvegi var unnið frá báðum hliðum, Mývatns-
öræfum og Hólsfjöllum, að Jökulsá á Fjöllum lijá Grímsstöðum,
þar sem brúin á að koma yfir Jökulsá. Haldið var áfram að leggja
hinn nýja Suðurlandsveg um Krísuvík og Selvog. Alls var unnið að
vegagerð á 110 stöðvum víðsvegar urn landið. Lengd akfærra þjóö-
vega á landinu mun í árslok 1945 liafa verið um 4700 km.
Símaframkvœmdir voru þessar helztar á liðnu ári: Símar voru
lagðir á 252 bæi í sveitum. Lögð var landsímalina milli Grímsstaða
°g Skjöldólfsstaða á Jökuldal, um 72 km. veg. Nýtt póst- og síma-
hús var tekið í notkun á Akureyri. Sjálfvirka miðstöðin í Reykja-
vík var stækkuð um 500 númer, og talsímasambandið við Norður-
lönd var opnað að nýju á árinu.
Ríkisstjórnin gerði í janúar 1945 samning við Bandaríkin um
loftflutninga, og einnig staðfesti Island þrjá samninga um flugmál,
8em gerðir voru á alþjóðaflugmálaráðstefnunni í Cliicago 1944:
Lráðaliirgðasamkomulag um alþjóðaflug, alþjóðasamkomulag um
viðkomuréttindi flugfara og alþjóðasamkomulag um loftflutninga.
Hafnarmannvirki og vitabyggingar. Á árinu 1945 voru lengdar
hryggjur og hafnargarðar í Keflavík, Akranesi, Skagaströnd og
víðar. A Sauðárkróki var gerður 30 m. langur garður til varnar
sandburði inn á höfnina. Á Breiðdalsvík var gerð 30 m. löng báta-
^ry§gja og á Djúpavogi byrjað á hafskipabryggju. 1 Hafnarfirði
var lokið við byggingu hafnargarðsins norðan megin fjarðarins,
°S er hann nú um 230 metrar á lengd. Á Ólafsfirði er skipakví í
smíðum, og í Neskaupftað var unnið að byggingu dráttarhrautar
^yrir allt að 100 tonna skip.
Á ICetilsfles vestur af Papey var reistur nýr 13 metra hár viti og
ailnar jafnhár að Skarði á Vatnsnesi. Að Hraunhafnartanga á
Melrakkasléttu var byggður 18 m. hár viti og á Snartarstaðatanga
Vl® Kópasker 14 m. hár innsiglingarviti. Þá var reistur 9 m. hár
Vltl á Kögri við Borgarfjörð eystra og innsiglingarvitinn í Sand-
öerði hækkaðar um 10 m.
Rafvirkjanir urðu miklar á árinu. Við Skeiðsfoss í Fljótum 'ar
l°kið við 1700 kw. virkjun, háspennúlínu til Siglufjarðar og innan-
'la;jarkerfi þar lokið og orkuveita þessi tekin í notkun. Orkuveita
^rá Hafnarfirði til Keflavíkur var fullgerð og tekin í notkun.
^'rjað var á undirbúningi byggingar 7500 kw. eimtúrbínustöðvar
'hð Reykjavík, ennfremur á lagningu rafleiðslu frá Sogsvirkjuninni