Eimreiðin - 01.07.1946, Qupperneq 40
184
ISLAND 1945
EIMREIÐIN'
til Eyrarbakka og Stokkseyrar, virkjun til Húsavíkur frá Laxár-
veitunni, o. fl. Hafin var 3500 kw. virkjun Andakílsfossa í Borgar-
firði og unnið að viðbót við aflstöðina í Engidal við Isafjörð úr
600 kw. upp í 1200 kw.
Byggingarframkvœmdir urðu meiri en nokkru sinni áður, bæði
hjá einstaklingum og ríkinu. Af opinberum byggingarframkvæmd-
um í Reykjavík má nefna þessar: Viðbót við ICleppsspítalann og
lxin nýja fæðingardeild Landsspítalans, viðbygging við stjórnar-
ráðsbygginguna Arnarhvál, gagnfræðaskóli fyrir 500 nemendur,
Þjóðleikhúsið, barnaskólinn í Laugarnesi, Laugarneskirkja og liinn
nýi barnaskóli á Melunum. Engin þessara bygginga var þó fullgerð
í árslok. Stýrimannaskólinn var aftur á móti tekinn í notkun um
liaustið.
SLYSFARIR urðu með minna móti á árinu samanborið við hin
styrjaldarárin, enda lauk styrjöldinni á miðju síðastliðnu ári. Af
völdum sjóslysa fórust 34 íslenzkir menn og konur á árinu, þar
af 20 af liernaðarástæðum. Stærsta sjóslysið á árinu var, er e. s.
„Dettifoss“ fórst við Bretlandseyjar 21. febrúar, af völdum styrj-
ahlarinnar. En með lionum fórust 15 manns. Auk farþegaskipsins
„Dettifoss“ fórust á árinu 1 flutningaskip, 1 línuveiðari, 6 fiski-
bátar yfir 12 rúmlestir og 4 þilbátar undir 12 smál. Alls misstw
Islendingar á árinu 2621 rúml. skipastóls.
MANNFJÖLDI á öllu landinu var um ájramótin 1945—46 alls
130,842 manns, samkvæmt liinu árlega manntali. Þar af vorU
58.910 manns lieimilisfastir í sveitum, en 71.446 í kaupstöðuin-
Ibúatala kaupstaðanna var þessi:
Reykjavík................. 46 578 Ólafsfjörður ................ 909
Hafnarfjörður ............. 4 249 Akureyri................... 6144
Akranes.................... 2 168 Seyðisfjörður................ 821
Isafjörður................ 2 919 Neskaupstaður .............. 1 493
Siglufjörður.............. 2 877 Vestmannaeyjar ............. 4 588
Mannfjölgun á öllu landinu 1944 og 1945 hefur orðið 492?
manns. Mannfjölgunin 1945 hefur orðið 2565 manns eða 2 %•
Fólki í kaupstöðum hefur á árinu 1945 fjölgað um 4,1 % (Ólafs'
fjörður meðtalinn, en liann var gerður að kaupstað í ársbyrjww
1945). 1 sýslunum hefur fólkinu fækkað árið 1945 um 0,4°/c-