Eimreiðin - 01.07.1946, Blaðsíða 86
EIMREIÐIN
Frá landamærunum.
Tilraunir dr. Cannons.
(Eins og kunnugt er af bókum
dr. Alexanders Cannon, hefur
hann um langt skeið fengizt við
tilraunir á dularöflum lífsins, með
undraverðum árangri. Sjálfur hef-
ur hann með dáleiðslu framkvæmt
mörg þau fyrirbrigði, sem kunn
eru frá tilraunafundum miðla. Ég
birti hér á eftir orðrétta skýrslu
tveggja fundarmanna, í íslenzkri
þýðingu, og er skýrslan frá fundi,
sem haldinn var á heimili dr.
Cannons á Manareyju 17. dezem-
ber 1944. Skýrslan er birt með
leyfi doktorsins og er ein af mörg-
um vottfestum skýrslum, sem
mér hafa borizt um tilraunir hans
xrá árunum 1943—1944.
Ritstj.)
Hinn 17. dezember 1944 nutum
við þeirrar velvildar að mega vera
viðstödd tilraunir, sem fram fóru
á heimili dr. Cannons á eynni Mön.
Þessi fundur reyndist okkur fram-
úrskarandi merkilegur, og höfum
við því skráð athuganir okkar á
honum, sem hér fara á eftir.
Viðstaddir á fundinum voru:
Dr. Sir Alexander Cannon.
Rhonda.
Frú Kearly.
Margarette.
Parkin liðsforingi.
Hr. Allwork.
Hr. A. de Vane Smyth.
Frú Weatheread.
Frú Anna Dawson.
Ungfrú Myers.
Ungfrú Mothersole.
Frú Margaret Perry.
Hr. Richard Perry.
Meðan fundurinn stóð yfir, voru
leiknar allmargar hljómplötur við
sérstakan litljósaútbúnað, og
reyndiat þetta að hafa mjög ró-
andi áhrif á hlustendurna, sem
nutu við það unaðslegs friðar og
kyrrðar allan tímann, sem tilraun-
irnar stóðu yfir.
Fyrst sannaði dr. Cannon okk-
ur hvernig hægt er að gera sjálf-
an sig ónæman fyrir áhrifum
elds, með því að hækka líkamshita
sinn með ákveðinni öndunarað-
ferð. Hann hélt logandi eldspítu
að hörundi vinstri handar og lét
eldinn brenna þar út, en þó að við
rannsökuðum nákvæmlega hörund-
ið á eftir, sást þar ekki vottur af
brunaroða hvað þá meir, en ask-
an af eldspítunni sat þar eftir.
Dr. Cannon útskýrði því næst
með einföldu dæmi grundvallar-
lögmálið fyrir lyftingafyrirbrigð-
um. Hann lét logandi kerti standa
í skál með lituðu vatni og hvolfdi
síðan glasi yfir kertið. Undir eins
og ljósið á kertinu slokknaði, steig
vatnið í glasinu, svo að yfirborð
þess varð hærra en í sjálfri skál-
inni.
Þessu næst lét dr. Cannon okk-
ur í té gott dæmi um hugsana-
flutning.
Margarette var beðin að ganga
út, og fór hr. Allwork með henni
til þess að tryggja, að hún gæti
ekki heyrt neitt, sem gerðist í til-
raunaherberginu. Dr. Cannon bað
um, að einhver fundarmanna kæmi
með einhvern hlut, sem hann bæri
á sér. Frú Weatheread tók gift-
ingarhringinn af hönd sér og bað