Eimreiðin - 01.07.1946, Blaðsíða 88
232
FRÁ LANDAMÆRUNUM
ICIMREIÐIN
yfir sig, dr. Cannon kveikti ljósin
og gekk til hennar, tók kápuna af
herðum hennar og leysti hendur
hennar. Við sáum um leið, að hún
hafði í höndunum þrjá smámuni
úr málmi, en að hendur hennar,
andlit og fötin var allt atað ó-
hreinindum. Eim\ig var nokkur
hluti kápunnar, sem hún hafði
haft á herðunum, mjög útötuð í
óhreinindum. Dr. Cannon vakti nú
Rhondu úr dáleiðslunni, og var
fundinum þar með lokið.
Við getum enga skýringu gefið
á atburðum þeim, sem hér hefur
verið skýrt frá, en við hikum ekki
við að segja, að í heimi vorum séu
til og starfi viss máttarvöld, sem
almenningur hefur hvorki hug-
mynd um né skilur, enn sem kom-
ið er.
(Undirskrift).
Margaret Perry,
Ricliard Charles Perry.
(Síðar munu ef til vill birtast
fleiri vottfestar frásagnir af til-
raunum dr. Cannons).
FIRÐHRÆRINGAR.
Hreyfing hluta, án þess að þeir
séu snertir og án þess að hreyf-
ingunni valdi nokkrir þekktir
kraftar, svo sem segulafl, raf-
magn, þyngdarlögmálið o. s. frv.,
er gamalkunnugt fyrirbrigði. Tele-
kinesis nefndu sálarrannsókna-
mennirnir þetta, en það orð hefur
verið útlagt firðhræringar á ís-
lenzku. Vísindamenn hafa löngum
gaman af að finna upp ný heiti
á gömlum og alþekktum fyrirbær-
um. Orð eins og skyggni, galdrar,
uppvakningar, fylgjur o. s. frv.,
urðu of alþýðleg, ekki nógu vís-
indaleg, og þá var farið að taka
upp ný nöfn. Eitt nýjasta nafnið
er psychokinesis. Það gefur í raun-
inni ekkert nýtt til kynna um þau
fyrirbrigði, sem það á að tákna
og áður voru nefnd telekinesis eða
firðhræringar. En það hefur nú
verið tekið upp í titil hávísinda-
legrar ritgerðar, sem Ameríska
sálarrannsóknafélagið birti nýlega
um tilraunir með 54 háskólastú-
denta. Voru þeir látnir kasta ten-
ingum með það takmark fyrir aug-
um að einbeita huganum að því,
að ákveðinn flötur teninganna
kæmi upp. Allt var þetta fi'am-
kvæmt með hinni ýtrustu ná-
kvæmni, og kom í ljós, að árang-
urinn varð 171 stigi betri en búast
mátti við, ef tilviljunin ein hefði
ráðið. I skýrslu tilraunamannanna
er talið sannað með þessum til-
raunum, „að mannshugurinn geti
haft bein áhrif á efnið úr fjar-
lægð, með aðferðum, sem eðlis-
fræðingar nútímans skilja ekki
enn sem komið er“.
DULRÆNAR FRÁSAGNIR
FRÁ ÍSLANDI.
Á síðastliðnu sumri dvaldi hér
á landi sálarrannsóknamaðurinn
enski Horace Leaf og hélt hér fyr-
irlestra um sálræn fyrirbrigði.
Hann ferðaðist einnig víða um
landið. Meðan hann dvaldi hér,
birtust eftir hann nokkrar greinir
frá Islandi í enska vikublaðinu
„Psychic News“, sem kemur út í
London. I greinum þessum skýrði
hann frá ýmsum dulrænum fyrir-
brigðum, sem gerzt hefðu á Is-
landi, og vöktu greinir hans all-
mikla eftirtekt. Nokkurrar óná-
kvæmni gætti í sumum atriðum, en
yfirleitt munu frásagnir þessar
hafa verið rétt og samvizkusam-
lega skráðar. Horace Leaf lét mjög
vel af komu sinni hingað — og
hyggst að skrifa bók um ísland,
sem koma mun út bráðlega. Hann
er kunnur rithöfundur og land-
fræðingur, þó að mesta athygh
hafi hann vakið fyrir dulrænar
gáfur sínar og rannsóknir dular-
fullra fyrirbrigða.