Eimreiðin - 01.07.1947, Page 16
168
ÆVINTÝRIÐ UM INDLAND
eimrexðin
sanngildi trúarbragða Hindúa, og hann lét vígjast til liins tigna
embættis síns samkvæmt ævafornri helgivenju trúbræðra sinna.
Æðsti maður heilagrar reglu meinlætamanna Hindúa, Sri Ambla-
vana Desigar, taldi sjálfsagða skyldu sína að sjá um, að fyrsti
indverski forsætisráðlierra alindverksrar stjórnar lilyti tákn mátt-
ar síns og víxlu til starfs síns frá heilagri reglu Hindúa, sem
Desigar veitti forstöðu. Frá Tanjore á Suður-Indlandi komu tveir
sendiboðar á fund Nelirus og með þeim frægasti ieikari Suður-
Indlands á indverska flautu. Hljóðfæri þetta, sem nefnist riaga-
saram, er ævafornt. Sendiboðar tveir frá Sri Amblavana óku að
kvöldi 14. ágúst hægt og liátíðlega til
lieimilis Nehrus. Á nakin brjóst þeirra
og enni liafði verið borin heilög aska,
vígð af Shri Amblavana. Fyrir þeim
gekk píparinn frægi. Hann staðnæmdist
öðru livoru, settist á jörðina og lék á
flautu sýia, svo sem fimm mínútur í
senn. En með honum var förunautur,
sem har stóran silfurbakka, en á honum
lá helgur dúkur, pithambaram, gerður
af fegursta silki og gullsaumaður. Skrúð-
gangan staðnæmdist fyrir utan lieimih
Nelirus, en að boði hans gengu sendi-
boðarnir hægt og liátíðlega inn, undir
blaktandi blævængjum, sem tveir dreng*
ir veifuðu yfir höfðum þeirra. Annar sendiboðinn bar veldissprota
úr gulli, fimm feta langan og tveggja þumlunga þykkan. Haiin
stökkti vígðu vatni yfir Nehru og núði liinni heilögu ösku á enni
hans. Þvínæst vafði liann dúknum pithambaran utan um Nehru
og rétti honum veldissprotann. Ennfremur var Nehru látinn neyta
soðinna hrísgrjóna, en þeim hafði um morguninn verið fórnað,
í Suður-Indlandi, gyðjunni Nataraja, og þau síðan flutt í flugvél
til Dellii.
Síðar um kvöldið fór önnur helgiathöfn fram í garðinum við
hús forseta stjórnlagaþingsins. Þar liafði verið reist musteri ur
trjám og laufi. Undir grænu laufþaki þess logaði helgur eldur,
og við ehlinn stóð Brahma-prestur, sem stökkti vígðu vatni a
forsætisráðlierrann og aðra ráðherra í nýju stjórninni, svo og