Eimreiðin - 01.07.1947, Side 21
EIMREIÐIN
ÆVINTÝRIÐ UM INDLAND
173
þess hafa verið ákveðin. Hann er nú, auk þess að vera landstjóri,
forseli stjórnlagaþingsins í Pakistan og forseti Bandalags Múham-
eðstrúarmanna. Hið nýstofnaða ríki er fyrst og fremst hyggt Mú-
liameðstrúarmönnum og stofnað til þess að fullnægja kröfum
þeirra. Það er fjölmennasta ríkið i veröldinni, þeirra, sem byggð
eru Múhameðstrúarmönnum, og leiðtogi þess hefur hlotið mikil
Mountbatten-hjónin, Jinnah og systir lians, Fatima, aS lokinni athöjnmni
í Karachi.
v°ld. Honum var fagnað ákaft af trúbræðrum sínum, þegar liann,
ásamt Fatimu systur sinni og Mountbatten-hjónunum, ók um
stræti Karacliiborgar að lokinni athöfninni í þinglmsinu.
kað, sem gerzt hefur í stjórnmálum Indlands undanfarna mán-
uði, er ævintýrið um það, hvernig eitt fjölmennasta veldi veraldar
tekur skilmálalaust við fullkominni sjálfstjórn af öðru stórveldi,
sem um langt skeið liefur liaft það sér liáð, en á nú sjálft í
tttiklum örðugleikum eftir nýafstaðna heimsstyrjöld. Þetta er
jafnframt ævintýrið um það, hvernig frjáls og óskertur sjálfs-
ákvörðunarréttur þjóðar megnar að tengja ný bönd, þegar önnui