Eimreiðin - 01.07.1947, Blaðsíða 32
184
ÍSLAND — EYLAND
EIMRBIÐlIí
kannast við nafnið eitt og leiða af því þær ályktanir, að hér búi
Eskimóar einir.
4. Nafninu á landinu hefur raunverulega verið breytt, þvi
að það hét Thule, áður en það hlaut Islandsnafnið, enda þótt
Hrafna-Flóka liafi ekki verið kunnugt um það. Nöfnum landa
og borga hefur oft verið breytt, og liefur það tekizt fljótt og
vel, t. d. Christiania — Oslo, Mesopotamia — Iraq, Irland —
Eire.
Bæði Þorsteinn og Sigurður vilja halda elzta nafni landsins,
annað hvort Thule eða Týli eða því sé snúið á íslenzkt mál og
landið kallað Sóley eða Sólland.
Nafngift þessa styðja þeir með sömu sögulegu, landfræðilegn
og fagurfræðilegu rökum, en í því efni get ég ekki fallizt a
þeirra mál. Nafnið Sóley mun komið frá Einari skáldi Bene-
diktssyni; það kemur mjög víða fyrir í kvæðum hans, en að
mínum dómi er hér um þeiti að ræða, en ekki nafn, tákn, sem
felur í sér ættjarðarliugtak skáldsins, en engu að síður glöggt
dæmi um það, að liann undi ekki Islandsnafninu.
1 þessu sambandi minnist ég þess, að þegar ég sumarið 1920
vann að landmælingum fyrir Einar og kom til hans eitt sinn, að
hann sýndi mér nokkrar ljósmyndir stækkaðar af hinum forno
Papahellum (Irabýlum) á Suðurlandi. Myndir þessar liafði hanö
verið að sýna erlendum ferðamönnum, sem voru í heimsókn hja
lionum. Sagði liann í aðaldráttum frá fundi íslands, dvöl Papa
(Ira) hér á landi og rannsóknum þeim, er hann liafði gert þar
að lútandi. Af samtali okkar ræð ég það, að hann hafi ekki veriú
þess fýsandi, að nafnið Sóley yrði nafn á landinu, enda þótl
hann sneri orðinu Thule þann veg á íslenzkt mál.
Áður en frekar verður vikið að nýju nafni á landinu, þyklf
rétt að rifja lauslega upp skoðanir annarra þjóða á IslendinguO1,
Þessa mun vera nokkur þörf nú. Yið vitum, að stórveldi keppagt
um yfirráð yfir þeim stöðvum lieims, sem mestu máli skipta 1
valdabaráttunni, og vörn lítillar þjóðar er fyrst og fremst sU
virðing, sem liún nýtur meðal annarra siðmenntaðra þjóða. Ef
því er trúað, að hér búi Skrælingjar, er engu stórveldi vandur
eftirleikurinn við okkur. Skilningur manna á þessu hefur koinið
glögglega fram í auknum kröfum um landkynningu.
Hér verða tekin nokkur dæmi, öll eftir hernámið. íslendinglir