Eimreiðin - 01.07.1947, Blaðsíða 42
eimreiðin
Jökullinn hleypur.
Eftir Vigfús SigurSsson.
[Árið 1912 lagði fjögurra manna leiðangur
upp í ferðalag þvert yfir Grænland, frá Dan-
merkurhöfn á Norðaustur-Grænlandi til
Pröven á Vestur-Grænlandi, en land þetta
hafði aldrei verið rannsakað áður. í för
þessari voru J. P. Koch, höfuðsmaður, dr.
Alfred Wegener, dósent, Lars Larsen og Vig-
fús Sigurðsson frá Gilsbakka í Axarfirði,
sein síðar tók þátt í tveim öðrum leiðöngr-
um til Grænlands og er fyrir löngu kunnur
hér á landi undir nafninu Vigfús Grænlands-
fari. Hann hefur ritað bók um fyrstu ferð
sína til Grænlands, og mun bók sú nú til-
húin í handriti. Frásögnin, er hér fer á eftir,
er kafli úr bók þessari, og segir fró hrakn-
ingum þeim, er leiðangursmenn lentu 1 a
Grænlandsjöklum haustið 1912 og um hina
Þeir félagar höfðu með sér íslenzka liesta
Dagana 27. og 28. september unnum vi3 af kappi a3 því
gera akfæran veg upp úr jökulkvosinni og brúa jökulsprung*
uraar. Um kvöldið hinn 28. gengum við kapteinn Koch dálítinn
8pöl inn á jökulinn. Næst brúninni var hann mjög sprunginn og
allmjög ósléttur. Þó mátti krækja fyrir flestar sprungurnar,
nokkrar þurfti þó að brúa og laga í kring, svo að hægt yrði að
fara þar með sleða, og þá vinnu töldum við ekki mikla. Þegat
lengra kom inn á jökulinn, var hann enn ósléttari. Ótal farvegir
eftir leysingarvatn höfðu grafizt niður í yfirborðið. Allir lágu
þeir frá norðvestri til suðausturs og voru því þvert á leið okkar-
Þó að þeir væri ekki djúpir, urrí hálfur annar metri, voru þeir
slæmur farartálmi. Verra var þó, að allsstaðar á milli lækjarfar-
veganna voru djúpir stampar ofan í jökulinn, með ísþaki ofan a,
en allt tómt undir. Yrði því manni eða liesti það á að stíga f®*1