Eimreiðin - 01.07.1947, Side 84
236
RITSJÁ
EIMREIÐIN
í bókinni, er hún mjög skemmtileg
aflestrar víðast og bregður Ijósi yfir
inargt, sem betur fer að só geymt, en
ekki gleymt. Bráðskemmtilegur þyk-
ir mér kaflinn um veru höfundar á
jagtinni „Svend“, frásögn um það
litla skip og skipverja, hrakninga og
svaðilfarir. Sem betur fer hefur mikið
breytzt aðbúð og áhætta fiskiinanna
vorra frá því er þá var, og er gotl
fyrir þá, sem síóánægðir eru, að at-
huga, hvað feður þeirra og afar lögðu
Iiart að scr að draga hjörg í land.
Fjarri fer þó því, að ég telji nokkurn
tíma of mikið gert að því að efla
öryggi sjómanna, né lögbjóða hæfi-
lega hvíldartíma. — Einnig er mjög
gaman að lesa sögu Garðars-félagsins
á Seyðisfirði, skráða af nákunnugum
inanni eftir um 50 ár frá því þetta
merkilega félag starfaði. Er ekki laust
við, að þar sé brugðið upp nokkuð
nýrri mynd af ýmsum mönnum, sem
þjóðfrægir voru — og eru.
Á bls. 73—74 er getið um Sigurð
Jónsson Breiðfjörð og sagt, að Iiann
hafi farið til Ameríku sumarið 1886.
Svo mun ekki hafa verið. Sigurður
fór í Latíuskólann og dó, áður en
hann lyki námi, eftir því sem ná-
kunnugir menn herina.
Eg hlakka til að sjá framhaldið
af endurminningum Mattliíasar Þórð-
arsonar og þakka honum fyrir þessa
hók. Þorsteinn Jónsson.
ÆVISAGA JÓNS SIGURÐSSONAR.
Dr. Páll Eggert Ólason hefur
samið styttri ævisögu Jóns forseta
Sigurðssonar en þá, sem Þjóðvina-
félagið gaf út á árunum 1929—1933,
og er þó þessi hin síðari sagan mikið
verk, nál. 500 bls. í Skírnisbroti.
Titillinn er: Jón SigurSsson. Foring-
inn mikli. Líf og landssaga. Rvk.
1947 (ísafoldarprentsmiðja h.f.). Sag-
an hafði komið út í heftum sem ein
Bókinenntafélagsbókanna. En ísa-
foldarprentsmiðja h.f. hefur nú gefið
liana út í heild og sent á bókamark-
aðinn í vönduðu skinnhandi fyrir
kr. 60,00, sem verður að teljast mjög
ódýrt eftir núverandi verði á hókum.
Fjöldi mynda af mönnum, innlend-
um og erlendum, sem koma við, ævi-
sögu Jóns, og þá um leið sögu lands
vors, prýða lesmálið.
Jón Sigurðsson hefur vaxið, að
verðleikum, í vitund íslenzku þjóð-
arinnar, eftir því sem árin liðu, og
enn á hann eftir að vaxa, eftir þvi
sem þjóðin vex sjálf að styrkleik og
sjálfstæði. Hann er að verða þjóðar-
dýrðlingur. Ævisaga lians, eins og
dr. Páll liefur frá henni gengiö, gefur
sanna og skýra mynd af því mikla
verki, sem hann vann í þágu þjóð-
arinnar. í sínum alhliða mikilleik
opinherast oss söguhetjan, við lestur
þessarar bókar. Óliilandi starfsþrek,
stjórnvizka og brennandi ættjarðar-
ást sameinast í persónu Jóns Sigurðs-
sonar. Saga lians um langt skeið er
saga frelsisharáttu umkonnilítillar
þjóðar, sem varð máttug fyrir lians
verk. Margir ágætir menn lögðu þar
liönd að, en hann var leiðtoginn, sein
markaði stefnuna og ruddi hrautina-
Þannig er frá sagt og á efni lialdið
í þessari hók, að ekki gleymist. Þetta
er .hók, sem þjóðin hefur gagn °8
ánægju af að lesa, ekki sízt unga
kynslóðin, sein á að erfa landiö.
Sv. S.
VIRKIÐ í NORÐRI. I. bindi. R”ífc
1947 (ísafoldarprentsmiSja h.f
Verð ib. kr. 100.00.
Þafl lá svo sem í lilutarins eðli*
ekki myndi lengi dragast að rilíl