Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1947, Side 91

Eimreiðin - 01.07.1947, Side 91
eimreiðin Sœkur, Jeftt kotna mAtu <(acfa: 1. STRANDAMANNABÖK, eftir Pétur Jónsson frá Stökkum. Guðni Jónsson bjó undir prentun. í þessari bók eru, auk héraðalýsinga, margar merkar frásagnir, svo sem um sjó- mannalíf á Gjögri á 19. öld, Svaðilfarir í leguferðum, Hákarlaveiðar í hafís og margt fleira. 2. SÖGUR ISAFOLDAR. í gamla sögusafni ísafoldar, Iðunni gömlu og víðar, eru margar ágætar sögur, sem Björn heitinn Jónsson, ritstjóri og síðar ráðherra, þýddi. Auk þess birtist eitt bezta safnið af íslenzkum sagnaþáttum neðanmáls í ísafold. Úrval þessarra þýðinga og íslenzku sagnaþættirnir allir munu nú koma út í tveimur eða þremur bindum, og kemur fyrsta bindið næstu daga. Sigurður Nordal hefur valið í útgáfuna, en Ásgeir Blöndal Magnússon búið und- ir prentun. 3. ÚR BYGGÐUM BORGARFJARÐAR. Kristleifur Þorsteinsson, fræðimaður á Kroppi í Borgarfirði, sendir næstu daga á bókamarkaðinn annað bindi af greinum sínum og ritgerð- um: Úr byggðum Borgarfjarðar. Fyrra bindinu var svo vel tekið, að þrotlaus eftirspurn hefur síðan verið eftir fram- haldinu. 4. DALALÍF. Ein þeirra bóka, sem mesta athygli vakti á síð- asta ári og hlaut bezta dóma almennings, var Dalalíf, eftir Skagfirsku skáldkonuna Guðrúnu frá Lundum. — Síðari hluti bókarinnar er nú í prentun og kemur eftir fáa daga. 5. VIRKIÐ 1 NORÐRI. í fyrrahaust kom út fyrri hluti bókarinn- ar „Virkið í norðri, hernámssaga Islands", eftir Gunnar M. Magnúss. Bókin vakti mikla athygli og umtal og seldist mjög vel. í bókinni er mesti sægur af myndum frá hernáms- árunum, og hafa allmiklar umræður orðið um sumar þess- ara mynda, sem eru af skemmtanalífi hermanna og lands- manna. Síðara bindi bókarinnar kemur í þessum eða næsta mánuði. 6- MANNBÆTUR. Steingrímur Arason kennari er einn af okkar beztu mönnum. Hann hefur samið og þýtt margar bækur handa íslenzkum börnum, og allar náð mikilli hylli. í haust kemur út eftir hann mikil og merk bók, sem heitir Mann- bætur. Hún á erindi til allrar þjóðarinnar. * &ókaúerjlun QAafoldat

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.