Eimreiðin - 01.07.1947, Síða 91
eimreiðin
Sœkur, Jeftt kotna mAtu <(acfa:
1. STRANDAMANNABÖK, eftir Pétur Jónsson frá Stökkum.
Guðni Jónsson bjó undir prentun. í þessari bók eru, auk
héraðalýsinga, margar merkar frásagnir, svo sem um sjó-
mannalíf á Gjögri á 19. öld, Svaðilfarir í leguferðum,
Hákarlaveiðar í hafís og margt fleira.
2. SÖGUR ISAFOLDAR. í gamla sögusafni ísafoldar, Iðunni
gömlu og víðar, eru margar ágætar sögur, sem Björn heitinn
Jónsson, ritstjóri og síðar ráðherra, þýddi. Auk þess birtist
eitt bezta safnið af íslenzkum sagnaþáttum neðanmáls í
ísafold. Úrval þessarra þýðinga og íslenzku sagnaþættirnir
allir munu nú koma út í tveimur eða þremur bindum, og
kemur fyrsta bindið næstu daga. Sigurður Nordal hefur
valið í útgáfuna, en Ásgeir Blöndal Magnússon búið und-
ir prentun.
3. ÚR BYGGÐUM BORGARFJARÐAR. Kristleifur Þorsteinsson,
fræðimaður á Kroppi í Borgarfirði, sendir næstu daga á
bókamarkaðinn annað bindi af greinum sínum og ritgerð-
um: Úr byggðum Borgarfjarðar. Fyrra bindinu var svo vel
tekið, að þrotlaus eftirspurn hefur síðan verið eftir fram-
haldinu.
4. DALALÍF. Ein þeirra bóka, sem mesta athygli vakti á síð-
asta ári og hlaut bezta dóma almennings, var Dalalíf,
eftir Skagfirsku skáldkonuna Guðrúnu frá Lundum. —
Síðari hluti bókarinnar er nú í prentun og kemur eftir
fáa daga.
5. VIRKIÐ 1 NORÐRI. í fyrrahaust kom út fyrri hluti bókarinn-
ar „Virkið í norðri, hernámssaga Islands", eftir Gunnar M.
Magnúss. Bókin vakti mikla athygli og umtal og seldist
mjög vel. í bókinni er mesti sægur af myndum frá hernáms-
árunum, og hafa allmiklar umræður orðið um sumar þess-
ara mynda, sem eru af skemmtanalífi hermanna og lands-
manna. Síðara bindi bókarinnar kemur í þessum eða næsta
mánuði.
6- MANNBÆTUR. Steingrímur Arason kennari er einn af okkar
beztu mönnum. Hann hefur samið og þýtt margar bækur
handa íslenzkum börnum, og allar náð mikilli hylli. í haust
kemur út eftir hann mikil og merk bók, sem heitir Mann-
bætur. Hún á erindi til allrar þjóðarinnar.
*
&ókaúerjlun QAafoldat