Eimreiðin - 01.01.1953, Blaðsíða 53
eimreiðin
FUNDUR PÁSKAEYJAR
41
v®ri á að eyrnatappar þeirra slægist til eða skemmdust, taka
þeir tappana úr og setja eyrnasneplana upp yfir eyrun, og gerir
það þá einkennilega og hlægilega útlits.
Fólk þetta er vel limað, hefur mikla og sterka vöðva. Það er
Fávaxið, og náttúrlegur hörundslitur þess er ekki svartur, heldur
^leikgulur eða gulgrár, eins og við sáum á mörgum unglingum,
aiinaðhvort af því að þeir höfðu ekki málað líkama sinn dökk-
^láan eða þá, að þeir voru af hærri stigum og þurftu ekki að
V)nna á ökrunum.
Þetta fólk hefur einnig snjóhvítar tennur og óvenjulega sterk-
legar, jafnvel gamalt fólk og gráhært, eins og sást bezt á því, er
það beit í sundur harðar hnetur, þar sem skurnin var þykkri
°g seigari en ferskjusteinar hjá okkur.
Hárið á höfði þeirra og eins skeggið á flestum þeirra var stutt,
eðrir báru langt hár, er féll niður á bakið, eða var fléttað og
^ringað upp ofan á höfðinu, likt og hjá Kínverjum á Batavíu
°g þar er kallað condé.
Ekki gátum við kynnt okkur neitt verulega trúarbrögð þeirra,
Vegna þess hve stutt við stóðum þar við. Aðeins gátum við at-
^ugað það, að þeir kyntu eld fyrir framan merkilega stór likneski
Ur steini, er þar voru sett upp, settust svo á hækjur sínar,
hneigðu höfuðið, spenntu greipar og ýmist lyftu höndunum upp
e®a létu þær falla niður.
í fyrstu furðuðum við okkur stórlega á steinmyndum þessum,
þyí að við gátum ekki skilið í því, hvernig það var mögulegt að
k°nia þeim upp fyrir fólk, sem vantaði alveg stór tré og sterkan
kaðal sem nauðsynleg tæki til þess; sum þessara líkneskja eru
þé fullir 10 metrar á hæð og gildleikinn í hlutfalli við það. En
1 stað þess að vera gerð úr steini og flutt í heilu lagi, munu
þau vera mynduð úr leir eða öðru efni í jarðveginum og svo
þekin litlum, sléttum flögum úr tinnu, er settar hafa verið mjög
þétt 0g nett saman, og gert úr þessu mannslíkan.* Ennfremur
get maður séð upphækkun eða útskot frá öxlum og niður með
^olnum, eins og þar vottaði fyrir handleggjum, því að öll liknesk-
111 'órtust gefa manni þá hugmynd, allt frá höfði og niður til
) Hér skjátlast Roggeveen. Líkneskia eru úr mjúku eldbrunnu grjóti,
Sem auðvelt er að vinna, og hjuggu eyjarbúar þau út með steinverkfærum.