Eimreiðin - 01.01.1953, Blaðsíða 66
54
FALLINN ÆSKUMAÐUR
eimreiðin
þekkist fátt af hoUrnn ráðum.
Dularmögn úr djúpi alda
dæma refsing þúsundfalda.
Þeir, sem ungir lifið láta,
lifa og vaxa hinum megin.
Því skal ekki genginn gráta,
göngum rakleitt fram á veginn.
ÁvaUt skal í öldum hyggja.
Arfar nýir löndin byggja.
Þú, sem hugðist heiman leita
hærri mennta, vizku-sjóða,
auðnu freista, orku neyta
úti meðcU stœrri þjóða,
þú munt finna framavegi,
frið og störf á nýjum degi.
Upp skal horfa, áfram klifa,
andans djúp og hæðir kanna.
Nýrra tíma lýðir lifa,
loga kyndlar hugsjónanna.
Heimar guðs og manna mætast,
mannkyns von og draumar rætast.
Halldór Guðjónsson.
Sagniinai um Hollendinginn íljúgandi.
Sagnirnar um Hollendinginn fljúgandi eru ævagamlar. Þýzka skáldið
Heine segir fra því, að Hollendingur þessi hafi gert margar tilraunir
til að sigla suður fyrir Góðrarvonarhöfða og svarið, að hann skyldi aldrci
hætta við þær tilraunir, þótt hann yrði að vera á siglingu um höfin
til eilífðar. Tónskáldið Richard Wagner samdi um liann söngleik, einn
þeirra heztu, sem eftir Wagner liggja. Einnig samdi Wagner ljóðin við
tónlistina. Hollendingurinn fljúgandi var fyrir guðlast sitt dæmdur til