Eimreiðin - 01.10.1953, Blaðsíða 55
eimrehhn KALÍGtJLA OG MUSTERIÐ í JERÚSALEM 291
algerlega háðir þessu dýrlega lögmáli, og forfeður vorir hafa lagt
á sig erfiði og hættur til þess að verja það áföllum. Vér dirfumst
því engan veginn að gerast svo huglausir að leyfa lögmálsbrot,
af því að vér hræðumst dauðann. Því að dauðinn verður oss
ávinningur að Guðs vilja. Og þó að yfir oss gangi ógnir, þá viljum
vér taka þeim, heldur en láta óvirða lögmálið. Guð mun standa
oss við hlið í þeirri baráttu og bægja frá oss yfirvofandi hættum,
þegar vér erum að gera vilja hans og líðum fyrir hans málefni.
En ef vér létum að vilja þínum, yrðum vér sakaðir um vítavert
hugleysi, þar sem vér horfðum á, að lögmálið væri brotið. Og vér
tnundum baka oss þunga reiði Guðs, sem jafnvel þú verður að
játa, að er keisaranum æðri.“
m.
Petróníus sá nú í hendi sér, að ákvörðun Gyðinganna yrði ekki
haggað og skipun Kajusar yrði aldrei komið fram nema með
ófriði, er leiða mundi til mikilla blóðsúthellinga. Kallaði hann þvi
vini sína og nokkra þjóna, er þar voru hjá honum, og helt til
Tíberías1), til þess að sjá með eigin augum, hvernig háttað væn
með Gyðingunum. Og þegar Petróníus kom til Tíberías, komu
þegar tugþúsundir Gyðinga til hans. Þeir játuðu hreinskilmslega,
a-ð ófriður við Rómverja myndi verða þeim til tortímingar, en
töldu þó, að hitt væri miklu háskasamlegra, að þverbrjóta lög-
málið. Sárbændu þeir því Petróníus að hlífa þeim við þessum
skelfingum, að borgin helga yrði saurguð með vígslu likneskj-
Rnnar.
Þá mælti Petróníus við þá: „Kemur ykkur til hugar að lcggja
út í ófrið við keisarann og allan hans her, þið, sem ekki hafi nei
hð að heitið geti?“ _ . ,
Þeir svöruðu: „Því fer fjarri, að vér óskum eftir ófriði vi an ,
en vér erum staðráðnir í að láta heldur lífið en horfa a ogma
vort svívirt." Og eftir það vörpuðu þeir sér til jarðar og teyg u
fram höfuðin og kváðust þess albúnir að láta lifið. Og þessu
héldu þeir áfram án afláts í fjörutíu daga. Og allan þennan íma
var ekki snert við vinnu á ökrum, en um þessar mundir var san
ingartími. Með þessum hætti sýndu þeir, hve óhagganlegt a orm
þeirra var, að láta heldur lífið en horfa upp á það, að liknesRi
heisarans yrði reist í musterinu.
1) Við Genesaretvatn, mesta borg Galíleu.