Eimreiðin - 01.10.1953, Qupperneq 66
302
MÁTTUR MANNSANDANS
eimreiðin
hærri sviðum. Rannsóknir mínar staðfesta þó, að allt sem Ritn-
ingin hefur um þau að segja, er rétt. Endurkoma Drottins vors,
sem þar er boðuð, táknar þau miklu tímamót, þegar vér fáum
skynjað þau svið, þar sem allir þeir dvelja, sem héðan af jörðu
eru horfnir. Þegar sá dagur kemur, munu áhrif blindra leiðtoga
blindra, sem nú vaða uppi í höfuðbólum menningarinnar, þurk-
ast út, en þeim blindu leiðtogum lýsti Jesús sjálfur fyrir tvö
þúsund árum sem kölkuðum gröfum, . . . hræsnurum, . . . blind-
um leiðtogum, . . . trúskiptingum, . . . nöðrukyni, og fór um Jiá
orðum sem þessum: Þér blindir leiðtogar, sem síið mýfluguna
og svelgið úlfaldann,.....þegar þú þvi gefur ölmusu, þá lát
ekki blása í básúnu fyrir þér eins og hræsnararnir í samkundu-
húsunum og á strætunum, til þess að þeir hljóti lof af mönn-
um, . . . þér lokið himnaríki fyrir mönnunum, o. s. frv.
Hvað felst í þessum áfellisdómum? Hvorki meira né minna
en það, að þeir andlegir leiðtogar, sem fjötraðir eru í kreddur
og sértrúarviðjar, eru ahra manna óðfúsastir á að gleypa úlfalda
fáfræðinnar í afstöðu sinni til hins æðra ósýnilega heims, sem
alls staðar umlykur oss. En Jesús sagði: „I húsi föður mins
eru margar vistarverur . . .“ Svo er og í sannleika, og hliðin að
þeim vistarverum eru opin öllum, sem leita og knýja á.
Hvergi er hinu hlutlæga eðli þessara vistarvera lýst betur en
á táknmáli Opinberunar Jóhannesar. Öll reynsla mín af sálræn-
um rannsóknum styrkir þá skoðun, að vitranamaðurinn, sem
reit þá bók, hafi gert það í leiðslu eða undir áhrifum æðri mátt-
arvalda og hafi i því ástandi kannað ókunnar víðáttur alvitund-
arinnar. Það er ekkert óguðlegt eða rangt við þessa skoðun, því
að öll erum vér börn guðs og höfum því sem slík rétt til að
leita að þeim „mörgu vistarverum“, sem Jesús talaði um, og
ganga þangað inn, ef vér finnum einhverjar þeirra. Vér getum
þakkað það handleiðslu hinna miklu leiðtoga úr Austurlöndum,
svo sem Thibet, Persíu, Arabíu, Egyptalandi, Indlandi og Kína,
að oss er að takast að hefja oss upp úr yfirborðsmennsku vest-
rænnar sálarfræði, brjótast í gegnum blekkingar skynheimsins
og koma auga á þau sannindi, sem höfundur Opinberunarbókar-
innar er að boða. Hann sýnir oss framtíðina eins ljóslega og
hið liðna og skráir þar örlög mannanna, þau örlög, sem þeir
hafa að nokkru leyti sjálfir valið sér. Þetta sá opinberarinn i