Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1958, Blaðsíða 96

Eimreiðin - 01.01.1958, Blaðsíða 96
72 EIMREIÐIN ur og þver. Sá mætti fara, þótt bæði sé hann sýsluskil, hreppa- merki og fjórðungatakmark. Grýttur var liann og leiður, en rudd braut lá yfir hann, og amaði þar hvorki villa né veg- leysi. 7. Sunnan við Biskupsháls kemur Víðidalur á Fjöllum með einum samnefndum bæ. Voru þangað einir 16—18 km, og þar hafði ég hugsað mér hvíld og hélt nú þangað. Víðidalur er undarlegt býli, fjöllin umhverfis gróðurlaus að mestu og dalbotninn fátæklegur líka, en þarna er búið og búið vel og veitandi og alinn upp hópur barna. Afrennsli dalsins, Víðidalsá, rennur inn til lands í átt að jöklum, þegar aðrar ár flýta sér til sævar. En hún er til neydd. Hálsinn hrindir henni frá sér. Og eins og fleira, sem köldu er til kastað, fer hún að leita og finnur færa leið fram og vestur til Jökulsár. Hún á eftir að þruma í Dettifossi með mörgum fleiri og frægari og vagga sér í víðum sæ engu síður en hinar, sem enginn leggur stein í farveg fyrir. í Víðidal þurfti ég ekki að berja dyra. Húsbóndi hafði séð til mannaferða og lét mig ekki ríða hjá garði, hafði hann þó nógu að sinna, því bóksalinn var þar kominn og hafði haft nóg með sér til að geta byrjað verk sitt áður en ég kom- Höfðu drengir tveir þar á heimilinu fengið eitthvað að horfa í, og þótti mér góð sjón. Þama var ég kominn í skólahéraðið, og þar höfðu ungir menn gaman að lesmáli. Og ekki stóð á góðgerðum, en hrossin voru við stall. Við gengum til húsa. Þar var allt í ólátum. Rauðskjótta merin hafði ráðizt á Skugga og rekið hann frá, gat ekki einu sinni unnt honum króarhorns að standa í en elti hann um allt hús með hrinum og barsmíð. Hún hét að vísu Hekla og átti að verða háleit og fræg fyrir gos, en svona illindagos hafði ég ekki ætlað henni. Ég tók hana hið snarasta og dreif á hana klyfsöðulinn og allan varning okkar félaga og hugs- aði henni önnur not fyrir afl sitt og geðhörku en aðeins að fólskast við folann. Sjálfur settist ég á hann og átti þá von a að hún myndi ekki bíta þá tvenningu né berja til muna án
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.