Eimreiðin - 01.07.1959, Side 24
166
EIMREIÐIN
las þær og lærði þau. Skáldin, sem áður ortu fyrir og um kon-
unga og höfðu hirðir að áheyrendum, settu nú einkum saman
rímur og kváðu sér liljóðs í hreysum hins fátæka lýðs. Rím-
urnar gerðu ómetanlegt gagn sem dægxastytting á lönguin
kvöldum og með því að varðveita rnálið, skilning á því og
þjálfa brageyra fólksins. En ekkert skáld virðist framar dreyma
um að ryðja sér braut á erlendum vettvangi.
Tilviljun getur það varla verið, að fyrst þegar íslendingar
fá heimastjórn 1904, roðar af nýjum degi í þessu efni. Á því
herrans ári gerist sá atburður, að íslenzkur dýralæknastúdent,
Jóhann Sigurjónsson, sent þá hefur ákveðið að hætta námi,
þótt kominn sé að prófi, og lielga sig skáldskap eingöngu,
sendir Björnstjerne Björnson tvö kvæði eftir sig til athugun-
ar. Árið eftir semur Jóhann leikritið Dr. Rung, sendir það
líka Björnsson; og fyrir meðmæli frá honum aðallega er talið,
að Jóhann fengi það út gefið svo að segja samstundis lijá
Gyldendal, virðulegasta hókaforlagi í Kaupmannahöfn. Þar
með er ísinn brotinn. Jóhann Sigurjónsson ryður á ný ís-
lenzkum skáldum erlendis braut, sem hafði verið lirísi vax-
in og háu grasi um aldir, þó að enn líði nokkur ár, þar til
draumur hans um fé og frægð sem mikið skáld nái að rætast.
Veturinn 1911—12 er merkilegt missiri í sögn íslenzkra
bókmennta erlendis. Þá vinnur Jóhann Sigurjónsson sinn
mikla sigur með Fjalla-Eyvindi, fyrst á leiksviði í Kaup'
mannahöfn, síðan víðs vegar um Evrópu. Sama ár gaf Jónas
Guðlaugsson út ljóðabókina Söngva frá Norðurhafi á dönsku-
Eftir Gunnar Gunnarsson kom fyrsta bindi af Sögu Borgar-
ættarinnar á sama máli. Og Guðmundar Kamban var í óða
önn að skrifa Höddu Pöddu úti við Eyrársund. Allt voru þetta
bókmenntaviðburðir á Norðurlandamælikvarða. En með sýn-
ingu Fjalla-Eyvindar á leiksviðum höluðborga Evrópu og út-
komu Ormars Örlygssonar, fyrst á dönsku og síðar á fleiri
málum, er runnin ný öld hirðskáldanna, sem fóru utan fra
Sögueynni til að leita sér fjár og frægðar.
Fróðlegt er að bera saman lífskjör, efni og meðferð þess-
ara fyrstu frægu verka Jóhanns og Gunnars. Jóhann var fra
efnuðu heimili kominn, Laxamýri í Þingeyjarsýslu, og studd-
ur til mennta af ríkum foreldrum. Gunnar ólst upp í fa'