Eimreiðin - 01.07.1959, Síða 30
172
EIMREIÐIN
anna um hreinleika væri aðeins draumur, þá lifum við í
drauminum og fyrir Jiann. Draumar eiga ekki síður sína til-
veru en veruleikinn. Það er satt og rétt, að hugmyndir mann-
anna um guð eru liarla barnalegar, geta aðeins fullnægt
óþroskuðum og einföldum sálum. Það er líka rétt og satt,
að trúarbrögð þeirra, hver með sínum siðgæðisliugmyndum,
sumum ófullkomnum, öðrum óhæfum, eru afkvæmi sinna
tíma, eins og öll mannanna verk. En ég leyfi mér að fullyrða,
að eigi að síður beri þær í heild vott um þrá, viðleitni og vilja
til hins góða og — já, ég vil segja göfuga, sem vér liljótutn
ekki aðeins að bera lotningu fyrir, lieldur er það eina, þegar
öllu er á botninn hvolft, sent við getum lifað á.“
Síðasta skáldverk Gunnars frá þessu tímabili uin vandamál
samfélags mannanna er leikritið Dýrið með dýrðarljómann,
skrifað í anda Strindbergs og Ibsens, ef svo mætti segja. Létt-
úð og nautnaþorsti móðurinnar togast á við skyldurækni og
ábyrgðartilfinningu fyrir velferð sonar og eiginmanns. Hún
fellur í freistnina með þeim afleiðingum vanrækslu sinnar, að
luin missir báða, allt sem liún átti og var henni raunverulega
einlivers virði. Það skilur hún of seint. Og engin iðrun getui'
afplánað Iiennar sekt, því að laun syndarinnar er dauðinn.
Frá synd og sekt ábyrgðarleysis og tortímingar stríðsáranna
fyrri og tímans, er á eftir fór, tók nú Gunnar að leita eftit'
verðmætum til bjargar sál og samvizku. Og honum var nóg
að skyggnast í sjálfs sín barm, Iieim endurminninganna frá
æskuárunnm. Líkt og menning sú, rausn og fórnfýsi, er ríkti
á Ljótsstöðum, þrátt fyrir fátæktina, varð Gunnari áður fyri'
ímynd þess glæsileika, sem liann gæðir aðsetur Borgaraætt-
arinnar og mannkosta hennar, svo veittu einnig arineldar
bernsku- og æskuheimila Gunnars honum þá trú á lifið, sem
hann þurfti til að skapa sitt öndvegisverk, Fjallkirkjuna í 5
bindum, guðdómlegt rit. Almennt er Fjallkirkjan talin sjálfs-
ævisaga Gunnars Gunnarssonar, en hann telur liana skáld-
verk. Raunar hygg ég, að hún sé lrvort tveggja: uppistaðan
sem sagt bernsku- og æskuminningar, ívafið hugmyndaflug'
og sár líl'sreynsla þroskaðs liöfundar, sem skoðar átthagana
I) Sælir eru einfaldir, bls. 49.