Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1969, Page 45

Eimreiðin - 01.01.1969, Page 45
brúðargangá 27 „Einmitt — og það er fátæktin, sem þú óttast. En þú vissir það þó frá upphafi, að ég er fátækur." Andartak leið, áður en hún svar- aði. Honum var ekki ljóst, hvern- ig henni var innanbrjósts. En þeg- ar hann virti andlit hennar fyrir sér, sá hann greinilega, að bros hennar var í reyndinni ekki bros, heldur var þetta einhver vipra við munninn, sem líktist brosi. Hún sat með hendur í skauti, og hann sá, að það glóði á hring á fingri hennar. „Það var aldrei ætlun mín, að við trúlofumst. . . en mér er fjarska vel við þig. Andrés, þú mátt ekki reiðast mér, vegna þess arna, ég get ekki annað, en . . .“ „Við segjum þá skilið hvort við annað héðan í frá?“ „Óli hefur talað um, að láta lýsa með okkur . . .“ „Já, einmitt." Andrés reis þung- lega á fætur, stóð ráðleysislegur í sömu sporum og horfði á hana. Einhver var á ferli úti á enginu. Kannske var það Óli. „Jæja, ég þakka þér fyrir, Anna Lísa . . . fyrir það sem var.“ „Andrés! Hvað ætlastu fyrir?“ „Ég? Ég kynnist áreiðanlega ein- hverri annarri . . .“ Anna Lísa sat kyrr og starði fram fyrir sig löngu eftir að Andrés var farinn. Hún skildi vel, hvernig til- finningum hans var varið, og ekki var laust við að hún fyndi til sam- vizkubits. Þau höfðu búið allt svo vel í haginn þarna upp frá, Andrés °g móðir hans. En sjálf gat hún ekki annað, en hún hafði gert. Hún hafði yfirgefið fjölskyldu sína sökum jiess, að hún undi ekki fátæktinni og flökkulífinu. Á ferð- um sínum um byggðirnar hafði hún komizt að raun um, hvernig lífið gat verið — um leið sá liún, hversu ranglega hún og ættflokkur hennar notuðu tækifærin. Nei, hún þoldi ekki lengur heimilis- leysi og öryggisleysi. Og þegar hún og Óli væru gift, mundi hún kannski geta verið Andrési hjálp- leg og móður hans líka. Hún gekk hljóðlát heim að bænum og tók aftur til við störf sín í rúmgóðu eldhúsinu í Seli. Andrés var nú öðru vísi en hann átti að sér að vera. Móður hans grunaði, hvað amaði að honum, en vildi ekki hnýsast í einkamál hans. En þegar hann fór að hafa orð á því að fara alfarinn burtu, varð hún angurvær og óttaslegin. Hún hafði aldrei hugleitt þann möguleika, að hún kynni að verða einsömul á býlinu þeirra. Andrés var kominn að þeirri niðurstöðu, að Ameríka væri hið eina sem gæti bjargað honum úr því sem komið var, og þangað ætlaði hann að fara. Og einn góðan veðurdag staflaði hann öllum nýju húsgögnunum á flutningavagn og ók þeim til verzl- unarstaðarins niðri í sveit. Þar seldi hann þennan varning og fékk ríf- lega greiðslu fyrir. En það nægði honum þó ekki fyrir farseðli til Ameríku; þar vantaði mikið á. Þau ræddu málið heilt kvöld, hann og móðir hans, og þegar þau höfðu vellt þessu fyrir sér langa stund, og hún hugsað málið í nokkra
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.