Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1969, Page 56

Eimreiðin - 01.01.1969, Page 56
38 EIMREISIN gamli Russell með sinn mann- réttindadómstól, sællar minning- ar, og flokkast sennilega til meiri- háttar geðtrnflana af þeim, sem litu fyrirtækið óhýru auga. En íslenzka þjóðin vill búa vel að gamla fólkinu, svo segja þeir okkur að minnsta kosti, sem eru svo stórir í sniðum, að þeir geta mælt fyrir munn þjóðar- innar, þegar mikið tiggur við. I>að er mikið gert fyrir gamla fólkið, er okkur sagt. Því er kom- ið fyrir á elliheimilum, eigi það ekki annarra kosta völ. Lífeyrir þess er hækkaður dálítið, þegar gengi peninganna fellur. Margt af því hefir átt þess kost að tryggja sér eftirlaun í hinum ýmsu lífeyrissjóðum og einhvers staðar lengst inni í bláma fjar- lægðarinnar djarfar fyrir lífeyris- sjóði fyrir nlla landsmenn. Einn af starfsmönnum höfuðstaðarins hefir fengið embættistitilinn — ellimálastjóri — og hver veit nema að innan tíðar fáurn við rérstakan ellimálaráðherra og ellimálaráðuneyti. En þrátt fyrir allt það, sem nú er talið og ýmislegt það, sem ótalið er, hefi eg aldrei orðið þess var, að leitað hafi verið álits og umsagnar hinna öldruðu um það, hvort þeir hafi nokkuð til þessara mála að leggja. — Þeir eru að jressu leyti í sarna báti og fávitar, geðsjúklingar og aðrir slíkir, er ekki kunna fótum sín- um forráð. Gamalt fólk hefir ekki myndað nein hagsmunasamtök til fram- dráttar málum sínum. — Það hefir ekki farið í kröfugöngur né efnt til útifunda með ræðuhöld- um og hornablæstri til þess að vekja á sér athygli og leggja áherzlu á þau áhugamál, sem það ber fyrir brjósti. Það hefir heldur aldrei gert neinn uppsteyt þótt aurar þeir, sem það kann að hafa sparað sant- an til ellinnar séu af því reittir smátt og srnátt :með margendur- teknum gengisfeflingum. Okkur er sagt, að faðirinn á himnum viti jafnan hvers vér þörfnumst, áður en vér biðjum. \rið skulum vona að mennirn- ir, sem hugsa fyrir þjóðina, slagi nokkuð upp í himnaföðurinn og viti því jafnan, hvers gamla fólk- ið þarfnast, áður en það biður. Þeir, sem misst hafa eitthvað af starfsorku sinni, annað hvort fyrir elli eða örorku, þeim er sú orka sem þeim hefir verið eftir skilin, hið dýrmætasta, sem þeir eiga. Líf án starfs — er ekkert líf. Einu sinni átti blaðamaður tal við bónda, sem var eitthvað kom- inn á níræðisaldurinn. Blaða- maðurinn spurði: — Hvenær ætl- ar þú nú að fara að hafa það gott? — Það get ég aldrei, svaraði
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.