Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1969, Page 63

Eimreiðin - 01.01.1969, Page 63
ÍSLENZK SKÓLALÖGGJÖF OG SKÓLASTARF 45 veru orðið alveg ófullnægjandi og úrelt viðhorf, að nægilegt sé að endur- skoða skólalöggjöf þjóðar með vissu millibili, t. d. á 10 til 15 ára fresti, framkvæma allsherjarendurskoðun á námsefni og námsskrá öðru hvoru. Breytingar á þekkingu og þjóðfélagi gerast smám saman og eru alltaf að eiga sér stað. Þess vegna þarf skólakerfi, námsefni og námstilhögun í raun og veru að vera í sífelldri endurskoðun. Gildandi löggjöf um skóla- kerfi og fræðsluskyldu hér gerir slíkt einmitt mögulegt. Þannig hefur verið unnið undanfarin ár, og þannig tel ég að vinna eigi áfram. í samræmi við þessi sjónarmið var árið 1966 komið á fót sérstakri deild innan menntamálaráðuneytisins, sem annast á stöðugar vísinda- legar rannsóknir á skólakerfinu og gera tillögur til úrbóta jafnóðum. Skólarannsóknadeildin hefur m.a. beitt sér fyrir og haft umsjón með ýmsum tilraunum um nýjungar í námsskipan og kennsluháttum á barna- og gagnfræðaskólastiginu. Samkvæmt tillögum hennar var sérstakri nefnd falið að endurskoða námsefni og kennsluhætti í eðlis- og efna- fræði í barna- og gagnræðaskólum, og hefur nefndin skilað ítarlegri álitsgerð um það efni. Hliðstæð endurskoðun, að því er varðar Iíffræði, er nýlega hafin. í ársbyrjun 1968 var sett reglugerð um samræmt gagn- fræðapróf, þar sem gert er ráð fyrir, að gagnfræðapróf verði samræmt landspróf í íslenzku, dönsku, ensku og stærðfræði. Skipuð var nefnd til þess að undirbúa og annast þessa samræmingu, og hefur hún samið drög að námsskrá fyrir gagnfræðadeildirnar, sem kennt er eftir í vetur í reynsluskyni. Á s.l. hausti var einnig gengið frá drögum að námsskrá fyrir landsprófsdeildir, og eru þau reynd í skólunum í vetur. Náms- skrárnar verða síðan endurskoðaðar að fenginni þessari reynslu. Um allt framangreint endurskoðunarstarf hefur Skólrannsókndeild mennta- málaráðuneytisins haft hönd í bagga. Ýmsar tilraunir hafa og verið gerðar á sviði málakennslu á fræðsluskyldustiginu. Og nú í vor eru fyrirhugaðar ýmsar breytingar á framkvæmd landsprófsins frá því, sem áður hefur verið. Með þessu stutta yfirliti hef ég viljað gera tilraun til þess að skýra tengsl þessa frumvarps um menntaskóla við þá heildarendurskoðun íslenzkrar skólalöggjafar og skólastarfsins á fræðsluskyldustiginu, sem átt hefur sér stað undanfarin ár og stendur enn yfir. Stefnan hefur verið sú, að setja fyrst nýja löggjöf uni alla sérstaka skóla og skólastig, en framkvæma samtímis breytingar í þeim skólum, þar sem fræðslu- skyldan er framkvæmd, þar eð gildandi lög gera beinlínis ráð fyrir því, að nauðsynlegar breytingar innan skóla og skólastiga fræðsluskyldunn- ar séu framkvæmdar, án þess að lagabreyting þurfi að koma til. Að þessu loknu eigi síðan að setja ný lög um sjálfa fræðsluskylduna og taka ákvörðun um lenginu hennar, þegar það reynist fjárhaglega kleift. Breytingar hafa raunar einnig verið gerðar í framkvæmd á mennta-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.