Eimreiðin - 01.01.1969, Side 69
ÍSI.EX7.K SKÓI.ALÖGGJÖF OG SKÓLASTARF
51
a.m.k. var deilt í því sambandi, eða hvort gamli skólinn skyldi
starfa áfram við Lækjargötn og reistur yrði nýr. Á þeniian hnút var
ekki höggvið fyrr en núverandi ríkisstjórn tók um það ákvörðun árið
1961, að gerahvort tveggja: Halda áfram starfrækslu hins gamla Mennta-
skóla við Lækjargötu og byggja jafnframt á þeirri lóð nýtt hús fyrir
skólann, er einkum skyldi ætlað til ýmiss konar sérkennslu, — og reisa
jafnframt nýjan skóla annars staðar í bænum. Á árunum 1963—1964 var
hið nýja hús Menntaskólans við Lækjargötu reist, og er það stærra
en gamla húið og búið nýtízku kennslutækjum. Auk þess liefur Mennta-
skólinn við Lækjargötu fengið þriðja húsið til umráða, Þrúðvang við
Laufásveg. Árð 1965 var einnig hafin bygging Hamrahlíðarskólans, og
hefur þegar verið byggt þar húsnæði, sem er 3068m2 og í eru 16 kennslu-
stofur. Árið 1964 var einnig hafizt handa um stækkun Menntaskólans
að Laugarvatni um helming með því að byggja þar ný heimavistarhús,
og verður þeim framkvæmdum lokið á næsta ári.
Til þess að gera þessar framkvæmdir mögulegar hafa fjárveitingar
til byggingar menntaskóla verið margfaldðar á undnförnum árum. Árið
1960 voru fjárveitingar til byggingar menntaskóla 1,1 millj. króna, um-
reiknaðar til verðlags í desember 1968. Árið 1965 höfðu þær verið
auknar upp í 12.1 millj. króna, og á þessu ári nema þær 38.1 millj. kr.
Þótt hér sé augljólega um mjög rniklar fjárveitingar að ræða, má
engu síður spyrja þeirra spurningar, hvort aukningin sé nógu mikil
samt. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að hinir óvenjulegu stóru
árgangar áranna eftir stríð eru nú á menntaskólastiginu og á leið inn
í háskóla. í menntaskólunum fjórum eru nú alls 2200 nemendur. Eins
og nú er rúma þeir 1460 nemendur, miðað við einsetningu. Er þannig
um 50% tvísetningu að ræða, þ.e. að tvísett er í helming menntaskóla-
húsnæðisins. Auk þess eru um 100 nemendur við stúdentsnám í mennta-
deild Kennaraskóla og lærdómsdeild Verzlunarskóla. Á næsta hausti
mun nemendafjöldi menntaskólanna aukast um nálega 360 nemendur.
Það húsnæði, sem nú er í byggingu, mun taka 240 nemendur miðað við
einsetningu. Tvísetningarhlutfall mun því haldast, miðað við þær
byggingarframkvæmdir, sem nú er unnið að, ef litið er á menntaskóla-
húsnæðið í heild. En aðalviðbótin verður á Akureyri, og ekki getur
meginhluti hinna nýju menntaskólanemenda sótt nám þangað. Þess
vegna er nú í sérstakri athugun, að hefja í sumar byggingu fjórða áfanga
Hamrahlíðarskólans, en þeirri framkvæmd var frestað um eitt
ár fyrir tveim árum til þess að unnt væri þá að hraða byggingu Akur-
eyrarskólans. Auk þess er til athugunar að taka á leigu eða kaupa ein-
hvern af gagnfræðaskólunum í Reykjavík til afnota fyrir menntaskóla-
kennslu. Ég vona fastlega, að næsta haust verði til ráðstöfunar fyrir
menntaskólana meira húsnæði en það, sem nú er í byggingu fyrir þá, j