Eimreiðin - 01.01.1969, Síða 97
leikhúspistill
79
risið liærra að vísu, en þótt það sé
nú þannig með gamanleiki at' þess-
ari gerðinni, að þeir höfði fyrst og
fremst til sköpunartíma sinna og
eldist því fljótt, hefur leiknum
verið vel tekið af áhorfendum.
Öllu rniður gekk með „Candidu"
eftir Bernard Shaw, með Herdísi
Þorvaldsdóttur í aðalhlutverki, en
þar fór Gunnar Eyjólfsson með
leikstjórn — einhvern veginn íór
þetta sígilda verk fyrir ofan garð
og neðan hjá manni, og var þó yfir-
leitt vel á öllu lialdið.
Loks er það „Fiðlarinn á þak-
inu“, megin viðfangsefni Þjóðleik-
hússins á þessu leikári. Það er söng-
leikur, eftir bandaríska höfundinn
Joseph Stein, sem sækir efnið í
skáldsögu eftir rússneska gyðing-
inn og flóttamanninn Scholom
Aleichem, en Jerry Bock hefur
samið tónlistina. Þessi söngleikur
er margslungið verk og hefur meira
til brunns að bera en bandarískir
söngleikir yfirleitt, enda hefur
hann þegar farið víða og hvarvetna
hlotið mikið hrós. Þjóðleikhúsið
vandar eins vel til þessarar mann-
freku sýningar, sem föng eru á;
fckk til clæmis enskan leikstjóra,
Stellu Claire, til að annast leik-
stjórn — og reyndist þar sannarlega
heppið í valinu, því að árangurinn
af stjórn liennar er með ólíkindum.
Þó er óhætt að fullyrða að leikafrek
Róberts Arnfinnssonar í aðalhlut-
verkinu, Tevye mjólkurpóstur, sé
með enn meiri ólíkindum. Sums
staðar tekzt lionum svo vel, að vart
mun hafa betur verið gert á leik-
sviði hér í höfuðstaðnum og alls
staðar gerir hann betur en venja er
til. Með Púntilla og Tevye hefur
Róbert sannað, að fjölhæfari og
hæfileikameiri skapgerðarleikara á
miðaldra kynslóðin ekki á að skipa.
Semsagt gott, mundi Jón Grind-
víkingur safa sagt. En þó ekki
nógu gott. íslenzkir leikritahöfund-
ar láta enn á sér standa — en þó er
von að það lagist því að innan
skamms sýnir Þjóðleikhúsið nýtt
leikrit eftir Matthías Jóhannessen.
Hann hefur áður kvatt sér hljóðs
með tveim einþáttungum, vel gerð-
um, svo ekki virðist ósanngjarnt
að búast við meira en miðlungs-
verki úr hans höndum.
LEIÐRÉTTING:
Misritað er nafn Rúnars Hafdals Halldórssonar á bls. 65 og í efnisyfirliti.