Uppeldi og menntun - 01.01.1997, Blaðsíða 42
LEIKSKÓLI FYRIR ALLA?
AÐFERÐIR
Þátttakendur í báðum könnunum voru starfsfólk Dagvistar barna í Reykjavík sem
vann með börnum. í fyrri könnuninni voru sendir út 540 spurningalistar og svör
uðu 512 manns (svarhlutfall 95%) en í þeirri seinni voru sendir út 730 listar en 693
svör bárust til baka (svarhlutfall 95%). Fjöldi útsendra lista fór eftir ábendingum
leikskólastjóra um fjölda starfsmanna. Ekki liggja fyrir nákvæmar upplýsingar um
heildarþýði starfsmanna sem vinna við uppeldisstörf, en í Töflu 1 sést hvernig
svarendur 1986 og 1996 skiptust eftir menntun og starfssviði.9
Tafla 1
Svarendur eftir menntun og starfssviði og fyrri eða seinni könnun
1986 1996
Fyrri könnun Seinni könnun
Forstöðumenn/leikskólastjórar 44 (9%) 57 (8%)
Fóstrur/leikskólakennarar 112 (22%) 147 (21%)
Ófaglærðir starfsmenn 282 (55%) 367 (53%)
Þroskaþjálfar 12 (2%) 8 (1%)
Stuðningsfóstrur/kennarar 15 (3%) 22 (3%)
Annað 47 (9%) 92 (13%)
Samtals 512 693
í heild samanstóð spurningalistinn frá 1986 af 25 spurningum, en í listanum frá
1996 voru 20 spurningar. Hér verður eingöngu fjallað um svör við sex þessara
spurninga.
I fyrstu spurningu áttu þátttakendur að svara því hve miklu máli þeir teldu
sameiginlegt uppeldi fatlaðra og ófatlaðra barna skipta, fyrir fatlað barn, ófatlað
barn, leikskóla og samfélag.10 Þeir voru beðnir að svara á sex punkta kvarða, þar
sem einn merkti að þeir teldu sameiginlegt uppeldi skipta miklu máli fyrir viðkom-
andi, en sex merkti að þeir teldu það litlu máli skipta (sjá nánar í kaflanum um
úrvinnslu og greiningu hér á eftir).
9 í hvorugt skiptið tókst að fá nákvæmar upplýsingar um heildarfjölda starfsmanna sem vann uppeldisstörf á
vegum Dagvistar. Launalistar veittu ekki nægar upplýsingar um verksvið launþeganna. Nokkur hluti starfs-
fólksins vinnur t.d. við viðhald húsa og lóða eða eingöngu við matreiðslu. Sumar matráðskonur starfa með
bömunum en aðrar ekki. Þá er fjöldi starfsmanna að baki hverju stöðugildi nokkuð á reiki.
10 Hér verður vísað til spuminganna sem spurninga 1, 2, 3, 4, 5 og 6 til hægðarauka. En það eru ekki viðeigandi
númer, sbr. spurningalista í viðauka þessarar greinar og í skýrslu um rannsóknina (sjá Dóru S. Bjarnason
1998).
40