Ægir

Årgang

Ægir - 01.02.1908, Side 1

Ægir - 01.02.1908, Side 1
ÆGIR. MÁNAÐARRIT UM FISKIVEIÐAR OG FARMENSKU. 3. árg. Reykjavík. Febrúar 190 8. 9. blað. Capt. H. Amundsen. Lesendur Ægis fá hér að sjá mynd af foringjanum á »Islands Falk« í fyrra, er tók við því starli eftir Capt. Saxild og vilj- um vér biðja lesendur blaðsins að virða á betri veg að vér höfum ekki tækifæri til að minnast nánara á æíiat- riði þessa manns, en að eins geta þess að liann í sam- bandi við Capt. Saxild gerði mestann usla útlendum íiskilögbrjótum hér við land næst á eftir hinum alkunna Capt. Schack. En það, sem þessi mað- ur heflr sérstaklega gert fyrir ísland og sem efalaust verður fiskiveiðum landsins lil mikilla framfara með framtíðinni, er undirbún- ingur hans og áliugi á stofn- un alsherjar-fiskiveiðafélags fyrir alt land, sem í líkingu við »Félagið til eflingar norskum fiskiveiðum« og »Danskt fiskiveiðafélag«, skyldi starfa að samvinnu meðal allra landsmanna er liefðu fiskiveiðar sem atvinnuveg. þetla málefni bar hann fyrir brjóstinu og barðist tyrir því með svo miklu kappi, að hann mintist undantekningarlaust á það við hvern, er hann átti tal við, bæði alþingismenn, embættismenn og sjómenn, og lét hann fáa fara svo frá sér, að hann ekki hvetti þá til að hefjast handa og jafn r Capt. H. Amundscn. R. af Dbr. framt fékk þá til að lofa því, að stuðla að stofnun þessa félagsskapar. Hann sagði það oft, að hér á íslandi, bæði á sjó og landi væri mikið verkefni að inna af hendi, — og driffjöðrin til þess að koma því í framkvæmd væri framtakssemi og ekki sízt samvinna. Og svo langt er máli þessu komið áleiðis fyrir lians óþreytandi áhuga, að menn víðsvegar um land- ið eru reiðubúnir að starfa að og ganga í slikan félags- skap, og að lög eru þegar samin, og verða að líkind- um birt innan skams. Capt. Amundsen er mað- ur á bezla aldri og hefir nú i nokkur ár verið skipsfor- ingií herskipaflota Dana. Og getum við sagt um hann eins og nokkra fleiri af Jlota- foringjum Dana.er liaft hafa landvörn hér við landíð, að við höfum verið hepnir að fá þá hingað, cn jafn- framt óhepnir með það, hvað stulta stund við höf- um notið þeirra. XTm. afiabrögð hefir ekki frétzl neinstaðar að nú um þessar mundir. Botn- vörpuskip sem komu frá Suðurströndinni i byrjun þessa mánaðar fengu engan afla þar, en urðu lítils háttar vör við fisk í Miðnessjó. í jan. var stirð veðrátta og fram yfir mán.mótin, en nú góð nokkra daga.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.