Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.1908, Síða 4

Ægir - 01.02.1908, Síða 4
68 ægih. það getur undir ýmsum atvikum orðið að miklu liði. Geir Sigarðsson. Óskandi væri, og enda sjálfsagt, að aðrir er hefðu reynslu í þessum efnum vildu skýra frá því á prenti, því það er mikils varðandi að allur almenningur, er stundar sjó, sjái hve mikið gagn getur orðið að því að liafa lýsi eða oliu innanborðs, eí á lægi. I3að kostar tiltölulega lítið, en getur afstýrt stórskemdum á þilskipum og jafnvel mann- tjóni, hvort sem er á opnum bátum eða þilskipum. Á olíubátum (bátum með stein- olíu gangvél) er hægt um vik, því þar má gera ráð fyrir að alt af sé svo mikil olía við hendina að verja megi nokkru til að lægja sjó, ef á liggur; þó segja margir að steinolian sé ekki góð ein, því hún dreifi sér of fljótt, komi göt á olíulagið, en lýsi vilji aftur á móti stundum vera of þykt og renna of seint. Því sé bezt blanda af hvoru tveggja. — Hvert bezt sé, að hella úl feitinni, láta hana í poka með hampi í, eða í »ýli«, skal ég ekki dæma um, það getur verið undir atvikum komið hvað bezt á við, og það sjá vanir sjómenn lika fljótt, þegar á liggur.— En ef brúka á poka eða »ýli« hygg ég að gott væri að á nokkrum stöðum utan á skipinu, t. d. á kinnungum og á afturenda væru fest »augu« (kósar) með sterkum streng i, líkt og ílagglínu, er draga mætti pokann (»ýlinu«) að »auganu« með og setja hann þar fastan, líkt og þegar flagg er dregið á stangar hún, svo sjórinn gæti ekki haggað honum, eins og vill verða, þegar pokinn er að eins hengdur á borð- stokkinn. Eg skal nú ekki fjölyrða um þetta mál, en óska þess, að sem allra flestir vildu taka upp þann sið, að hafa nauðsynlegan út- búnað til þess að geta á þenna hátt afstýrt skemdum og manntjóni, ef háskann bæri að liöndum — en það getur orðið þegar minst varir —. Hið mikla tjón á mönnum og munum á síðustu vetarvertíðum ætti að vera sterkasta livötin fyrir alla, sem htut eiga að máli, til þess að láta ekkert ógert, er afstýra mætti öllum slysum. Þar sem eins er ástatt og hér er, hvorki björgunarstöðvar, né björgunarskip, ersér- staklega nauðsynlegt, að hvert skip megi sem mest treysta á sinn eigin útbúnað og hafi innanborðs öll þau björgunartæki, er auðið er að hafa, þar á meðal, þegar um þilskip er að ræða, nægilega báta, sem geti fleytt allri skipshöfninni vel, ef á liggur. Á því á skipshöfnin fulla heimting og það veit ég að öllum umhyggjusömum útgerð- armönnum og skipstjórum er ljúft að sjá um. Bjavni Sœmnndsson. Um hreyfivélaaflið, til notkunar við fiskiveiðar hér á landi. Eptir Edilon Grímsson. Frh. Þrátt fyrir það, að mikil eftirsókn er nú eftir hreyfivélum siðustu ár, og flestir telja þær alveg ómissandi í opna báta og smá þilskip, þá þykja samt margir ókostir við þær eins og þær nú eru. Það var einróma álit Norðmanna, að verksmiðjurnar þyrftu að leggja altkapp á að gera vélarnar enn fullkomnari og hentugri til brúkunar, einkum í fiskiskip og þetta vildu þeir telja vist að tækist eptir þeim umbótum sem þær hafa tekið nú síðustu ár. Það er víst að nú eptir sýningarnar í sumar, bæði í Bergen og Porsgrund, að verksmiðjurnar leggja alt kapp á þetta engu síður en áður. Það sem menn vildu heimta var það, að vélarnar væru sem léttastar og tækju sem minst pláss upp og væru sem ein- faldastar; nú eru sumar svo margbrotnar

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.