Ægir - 01.01.1921, Page 10
4
ÆGTR
í síðasta hefti Ægis gerði eg grein fyrir
hversvegna hann kom aðeins út 7 sinnum
á árinu, en um afgreiðslu hans á pósthús
héðan, vísa eg til póstkvittunarbókar félags-
ins, sem getur sýnt, að hann er ekki Iátinn
liggja hér eftir að hann kemur úr prent-
smiðjunni. Hvað ferðum hans suður með
sjó líður og hvenær hann er opnaður þar
get eg ekki ráðið við og engin kvörtuu
hefir hingað borist fyr en eg las hana í
Morgunblaðiuu.
Ár 1914 voru tekjur Ægis alls kr. 691 70
— 1915 — — — — — 846.60
— 1916 — — — — — 1177.50
— 1917 — — — — — 1254.60
— 1918 — — — — — 1650.80
— 1919 — — — — - 3200.15
Síðan 1915 hefir kostnaður allur við út-
gáfuna aukist gífurlega, en verð Ægis verið
1—2 kr. árgangur, svo að á flestum árum
hefir halli orðið talsverður eins og skýrsl-
ur Fiskifélagsins sýna og mestur verður
hann 1920 þar sem útgáfukostnaður er
um 5000 krónur á þeim 7 eintökum, sem
út komu á árinu síðast. Að vísu eru tekj-
ur þær mestu, sem orðið hafa, en þær
fylla litið.
Eg hefi ávalt skilið ganginn i þessu
svo, að eg sem ritstjóri Ægis væri sam-
vinnumaður erindrekanna og þeir mínir.
Laun okkar hjer eru lík og við störfum fyrir
sama félag og eigum að stefna að sama
marki, en enn sem komið er vantar tals-
vert á félagsskapinn og fyrir þá vöntun
liður aumingja Ægir.
Svo þakka eg fyrir hönd tímarilsins
öllum þeim, er aflaskýrslur og annað hafa
sent til birtingar í þvi, og sömuleiðis Kefl-
vikingum, sein bent hafa á gallana og
þannig stutt mitt mál.
Þar setn eg get þess, að laun mín og
erindrekanna séu lík, þá er hér skýringin.
Eg hefi 1200 krónur á ári fyrir Ægir, þeir
1300 kr. með ferðakostnaði. Til þess að
koma hverju hefti út fara 8—10 dagar; í
það þarf að safna, skrifa ritgerðir, lesa
prófarkir, skrifa utan á til kaupenda og
koma Ægi i böggla á póst. Flest af þess-
ari vinnu er yfirtíð. Hér við bætisl engin
dýrtíðaruppbót, hvorki hjá mér né þeim;
en þar sem það hefir komið i ljós, að
laun erindrekanna séu of lítil, þá vil eg
benda stjórn Fiskifélagsins og Fiskiþingi
á það, að fyrir löngu hefði átt að áætla
ferðastyrk til þess, að ritstjóra tímaritsins
gæfist færi á að kynnast ýmsu í veiði-
stöðum, i það minsta sunnanlands, og
fengi með því betri þekkingu á öllu, er
að þessari sérstöku ritstjórn lýtur, og gæti
gengið úr skugga um ýmislegt, er beima
á í ritinu, kynst mönnum, sem gæti orðið
til frekari gróða fyrir ritið. Ferðakostnaður
þessi þótt lítill væri, skyldaði ritstjórann
til þess að fara eitthvað í þessum tilgangi,
og það eitt væri nóg, enda er ritið til þess
ætlað, að grenslast eftir ástæðum og fyrir-
komulagi í verstöðum, en slíkt fæst ekki
með því að sitja ávalt á stól inni á skrif-
stofu og láta færa sér ógreinilegar og
óábyggilegar fréttir, sem enginn vill kann-
ast við, er þær loks sjást á prenti.
í janúar 1921.
Rilsljóri Ægis.
Skýrsla
erindreka Sunnlendingafjörðungs.
1 veiðistöðvunum, Stokkseyri, Eyrar-
bakka og alt út í Hafnir allgott ár hvað
fiskirí snertir, enda mest á þessum slóð-
um opnra báta sjósókn er telja má happa*
drýgsta eins og nú stendur á með oliu-
verð. Aftur á móti á Miðnesi og yfir alla
Faxabugt örlítill afli á opnum bátum á
vertíðinni, þvi netjafiskur brást að mestu