Ægir - 01.01.1921, Side 13
ÆGIR
7
Hlutu þessir kosningu:
Forseti: Ágúst Jónsson. Varaforseti:
Arni Geir Þóroddsson. Skrifari: Friðrik
J. Rafnar. Varaskrifari: Matth. Þórðar-
son.
Voru siðan kosnir 2 fulltrúar og 2
varafulltrúar til að mæta á Fiskiþingi
Fiskifélags íslands til 4 ára. Þessir:
Aðalmenn:
Sigurjón Jónsson og
Matthías Þórðarson.
Varamenn:
Páll Bjarnason og Árni Geir Fóroddson.
Var síðan gengið til dagskrár, og hún
samþykkt þannig:
I. Steinolíuverzlun
II. Samgöngumál
III. Samvinnumál
IV. Landhelgismál
V. Björgunarmál
VI. Lendingabætur
VII. Peningamál
VIII. Vitamál
Síeinolhwerzlun: Með sldrskotum til
þess, sem þegor hefir gjört verið i þvi
máli af hálfa ríkissljórnarinnar, álílur
þingið að mál það sé þegar komið á
heppilegan rekspöl, en skorar jafnframt
á stjórn Fiskifélags íslands að beina fram-
vegis áhrifum sínum til þess að frjáls
verzlun verði með steinoliu.
Sawgöngumál: Svohljóðandi till. sam-
þykkt:
Fjórðungsþingið skorar á stjórn Fiski-
félags íslands að beita sér fyrir þvi við
þing og stjórn rikisins að nægilegar sam-
göngur á sjó fáist framvegis til suður-
hafnanna við Faxaflóa, eða sem svari til
þess, er veitt er á fjárlögum til ferða á
Faxaflóa. Ennfremnr að séð verði fyrir
nægilegum styrk til samgangna við hafnir
Suðurlandsundirlendisins.
Samvinnumál: Fjórðungsþingið vekur
athygli á og skírskotar til samþykktar
er gjörð var á síðasta fjórðungsþingi í
þessu máli.
Landhelgismál: Um leið og fjórðungs-
þingið lætur i ljósi óánægju sína yfir því
hve landhelgisvörnin er ófullkomin og
ónóg, skorar það á stjórn Fiskilélagsins
að beila sér fyrir því að koma landhelgis-
vörninni við suðurströnd landisins og
Faxaflóa i sem bezt horf. Ennfremur
skorar þingið á Fiskifélagið að beina því
til sendiherra okkar í Kaupmannahöfn
að hafa vakandi auga á hvað gjörist með
stórþjóðunum um friðun fjarða og flóa,
og gæta þess að ísland njóti þar sömu
réttindi og önnur lönd, ef friðun verður
upptekin. Samþ. i. e. ldjóði.
Björgunarmál: Eftir nokkrar umræður
var svohljóðandi till. samþykkt: »Fjórð-
ungsþingið lýsir yfir þvi, að því finnist
óviðunandi hve lítið er aðhafst frá hálfu
þess opinbera til þess að tryggja líf sjó-
manna og sjá þeim og bátum þeirra
borgið i ofviðri, einkum á vetrum i hin-
um suðlægu veiðistöðum, og væntir þess
að stjórn Fiskifélagsins gjöri gangskör
að þvi, að áslandið sem nú er verði bætt
hið fyrsta og björgunarmálinu komið i
viðunanlegt horf.«
Lendingabœtur: Erindreki Eyrbekkinga
tók fyrstur til máls og lýsti erfiðleikum
þeim er fiskimenn þar ættu við að búa
hvað snerti affermingu fiskibáta. óskaði
stuðnings fjórðungsþingsins til að hrinda
áfram styrkbeiðni til bryggjugjörðar á
Eyrarbakka. Ennfremur töluðu fulltrúar
Keflavíkur i sömu áltj hvað Keflavík
snertir. Var síðan samþ. »Fjórðungsþingið
skorar á stjórn Fiskifélagsins að beitast
fyrir þvi að alþingið veitti styrk til
bryggjugerðar og lendingabóta i helstu
verstöðum Sunnlendingafjórðungs. Skal
sérstaklega benda á Keflavík, Eyrarbakka,
Stokkseyri og Akranes.«
Peningamál: Eftir lítlar umræður var