Ægir - 01.01.1921, Page 15
ÆGIR
9
Frá Fiskifélagsdeildinni»Tilraun« Hnífsdal:
Hálfdán Hálfdánarson útgerðarmaður
Frá Fiskifélagsdeildinni »Þuríður sunda-
fyllir« Bolungavík:
Arngrímur Bjarnason kaupmaður.
Frá Fiskifélagsdeildinni »Hvöt« Flateyri:
Steingrímur Árnason útgerðarmaður.
Frá Fiskifélagsdeild Dýrafjarðar:
Guðm. G. Kristjánsson verslunarm.
ísafirði, samkv. umboði.
Frá Fiskifélagsdeild Patreksfjarðar:
Sveinbjörn Kristjánsson kaupm. ísa-
firði, samkv. umboði.
Forseti fjórgungsins, Arngrímur Fr.
Bjarnason, setti þingið og stýrði fundum
þess, en ritari var kosinn Kristján Jónsson.
Svohljóðandi simskeyti var samþykt
að senda Fiskifélagsstjórninni í þing-
byrjun:
»Fjórðungsþing Vestfirðinga sett í dag
sendir yður kveðju. Það er eindreginn
vilji deilda og fulllrúa hér að Fiskiþingið
verði kallað saman i byrjun alþingis, lil
afgreiðslu ýmissa mikilsvægra mála, en
teljum Fiskiþing i sumar þýðingarlilið.
Óskum svars frá yður um hvenær Fiski-
þing kemur saman og þau sérstöku mál,
er Fiskifélagsstjórnin vill beina til Fjórð-
ungsþings. Þökkum hluttöku yðar i
niðurfærslu oliuverðs.«
Síðan var samþykt svohljóðandidagskrá:
1. Steinoliumálið.
2. Olíuforðabúr á ísafirði.
3. Vitamál.
4. Sala á sild.
5. Mat sjávarafurða.
6. Hafnabætur.
7. Starfstilhögun Fiskifélagsins.
8 Veðurfræðistöð.
9. Náms-skeið á ísafirði.
10. Ákvæði um næsta Fjórðungsþing.
11. Kosning Fjórðungsstjórnai'.
12. Kosning fulltrúa á Fiskiþing.
/. Steinollumálið: I því máli var að um-
ræður loknum svohlj. tillaga samþykt
með öllum atkv.
Náist hagkvæmur samningur um kaup
á steinolíu til landsins, skorar Fjóxð-
ungsþingið á Alþingi að hlutast til um
að íikisstjói'nin »taki hið bráðasta i sinar
hendur einkasöla á steinolíu samkvæmt
lögum nr. 7 frá 1917.«
II. Olíu-forðabúr á ísafirði: Eftirfarandi
tillaga samþykt i því máli með sam-
hljóða atkvæðum:
»Fjórðungsþingið skorar á ný fastlega
á stjórn Fiskifélagsins, að beita sér fyrir
því að olíu-forðabúr verði sett á stofn
hér á ísafirði hið allra bráðasta.«
III. Vitamál: 1 það mál var kosin nefnd.
lír. A. Kristjánsson, Steingrimur Árnason,
Hálfdán Hálfdánarson. Kr. A. Kristjánsson
mætti eigi á þinginu og lögðu hinir nefnd-
armennirnir fram svohljóðandi tillögu er
var samþykt i e. hlj. eftir ítarlegar um-
ræður:
a. »Með þvi að Arnarnesvitinn er að
dómi sjófarenda allsendis ófullnægj-
andi sem innsiglingarviti í Djúpið,
skorar Fjórðungsþingið eindregið á
Fiskifélagsstjórnina að hlutast til um
það við vitamálastjórnina, að fenginn
verði fullnægjandi viti á Arnarnes.
b. Fjórðungsþingið bendir því lil Fiski-
félagsdeildanna á Suðureyri og Flat-
eyri að láta nægilega rannsókn fara
fram á því, hvernig Keflavikurvitinn
lýsir fyrir Sauðanesboða, og kæra
tafarlaust fvrir vitamálastjórn, ef
vitinn lýsir eigi rétta leið fyrir
Sauðanes.«
/V. Silda- og fiskimal: í þvi máli sam-
þykt svohlj. ályktun með samlilj. atkv.
a. Fjórðungsþingið skorar á Alþingi að
leggja mikla áherslu á mat saltaðrar
sildar og strangt eftirlit með tunnun-
um, þangað til þær eru komnar i
skip.