Ægir - 01.01.1921, Qupperneq 16
10
ÆGIR
b. Fjórðungsþingið lætur það álit sitt i
ljós, að nauösynlegt sé að lögboðið
verði mat á öllum saltfiski, sem
gengur kaupum og sölum manna á
milli.
V. Sala á Síld: Samþykt svofeld ályktun
með 4 samhlj. atkv.
»Fjórðungsþingið álilur nauðsynlegt að
sala allrar útíluttrar síldar lcomist á
eina hönd i ár, og hallast eindregið að
því, að rikisstjórnin haíi söluna með
höndum og væntanleg útflutningsnefnd
verði þannig skipuð, að ríkisstjórnin út-
nefni 1 mann, samlag útgerðarmanna 2.
mann og Fiskifélag íslands 3. manninn.
VI. Hafnabœlur: í því máli samþykt
svohlj. ályktun með 6 samhlj. atkv.
»Fjórðungsþingið skorar á Fiskifélag
íslands, að sem fyrst verði fenginn vel
hæfur maður tíl þess að rannsaka og
gera áætlanir um hafnabætur viðsvegar
um landið.
Ennfremur skorar Fjórðungsþingið á
Alþingi, að veita sem ríflegastan styrk til
hafnabóta.
VII. SiavfstUhögun Fiskifélagsins: Nefnd
var kosin í það mál, Kristján Jónsson,
Arngrímnr Fr. Bjarnason og Árni Gisla-
son, og bar hún fram eftirfarandi tillögu
er var, eftir itarlegar umræður, samþykt
i e. hljóði:
a. Fjórðungsþingið skorar á stjórn Fiski-
félagsins að hafa ávalt á reiðum
höndum, og ekki sjaldnar en einu
sinni i mánuði, skýrslur um verð
framleiðsluvara og verð á erlend-
um útgerðarvörum, og senda íjórð-
ungserindrekunum jafnskjótt og
skýrslurnar berast henni i hendur.
b. Fjórðungsþingið skorar á Fiskiþingið
að hækka laun forseta að miklum mun
frá því sem nú er og jafnframt ætla
honum sæmilegan ferðakostnað til
þess hann geti ferðast og heimsótt
deildir út um landið einu sinni á ári.
Einnig telur Fjórðungsþingið rétt að
laun Fjórðungserindrekanna hækki
nokkuð og ferðakostnaður þeirra
verði aukinn.
c. Fjórðungsþingið álítur erindrekastarf
Fiskifélagsins erlendis óþarft að svo
stöddu, og telur sjálfsagt að fé því
er til erindrekans hefur verið varið,
verði varið til aukinnar starfsemi fé-
lagsins innan lands.
Ennfremur var í sama máli samþykt
svohljóðandi viðaukatillaga frá Axngrimi
Bjarnasyni.
»Fjórðungsþingið telur heppilegt að
framtíðarskipulag Fiskifélagsins verði
svipað og Búnaðarfélags íslands er nú,
og Fjórðungsþingið fái nokkur fjárráð
i sinar hendur til srnærri framkvæmda.«
VIII. Veðurfrœðisslöðvar. í því máli
samþ. svohlj. tillaga frá A. F. B. með
öllum greiddum atkv.
»Fjórðungsþingið skorar á Alþingi að
hlutast til um að veðurtræðisstöðvum
verði fjölgað í landinu og athuganirnar
gerðar svo fullkomnar sem unt er«.
IX. Námsskeið. í það mál kosin nefnd
Árni Gíslason, Guðm. G. Kristjánsson og
Steingrímur Árnason og eftirfarandi til-
lögur samþyktar:
1. »Fjórðungsþingið skorar á ný á stjórn
Fiskifélags íslands, að beita sér öfl-
uglega fyrir þvi, að sem fyrst verði
stofnaður sjómannaskóli á ísafirði,
er veiti rélt til meiri fiskiskipstjóra-
prófs. Á meðan ekki er stofnaður
slikur skóli, lelur þingið rétt, að
haldið verði áfram kenslu þeirri í
sjómannafræði, sem hér hefir verið
og þar af leiðandi kostnaður verði
greiddur að íullu úr Fiskifélags-
sjóði«.
2. Fjórðungsþingið álitur að kenslu i
vélfræði verði að bæta að miklum