Ægir - 01.01.1921, Blaðsíða 17
ÆGIR
11
mun og skorar á stjórn Fiskifélags-
ins að fá vel færan raann til kensl-
unnar. Námstíminn verði lengdur og
verkleg kensla meiri en verið hefir
og sérstök prófreglugerð verði samin«.
X. Landhelgismálið. Nefnd var kosin í
það mál, þeir, Sveinbjörn Kristjánsson,
Arngr. Bjarnason og Hálfdan Hálfdanar-
son, og bar hún fram svohljóðandi til-
lögur er voru samþ. i einu hljóði.
a. »Að þeirri stefnu síðasta Fjórðungs-
þings og Fiskiþings sé haldið fram
ötullega, að landhelgislínan verði
færð þannig, að ílóar og firðir lands-
ins sé alfriðaðir fyrir botnvörpu-
veiðum og síldveiði útlendinga.
b. Að sérstakur bátur annist landhelg-
isgæslu á tímabilinu frá 1. júlí til
31. desbr., á svæðinu frá Látrabjargi
til Hornbjargs, ár hvert. Og byrji sú
gæsla þegar á næstkomandi sumri, þar
sem yfirgangur botnvörpunga víðsveg-
ar á þessu svæði keyrir fram úr hófi.
c. Fjórðungsþingið beinir því til erind-
rekans, að leita lil Fiskifélagsdeilda
og sjávarútvegsmanna um fjárfram-
lög að nokkurum hluta til þessarar
gæslu, sem nemi eigi minna á hvern
hlut frá sjó, en lendingarsjóosgjald
er alment nú i veiðistöðvum hér«.
XI. Nœsta Fiskiþing. Sem svar upp á
áskorun til Fiskifélagsstjórnarinnar um
að kveðja saman Fiskiþing í vetur, hafði
erindreka ijórðungsins borist skeyti frá
Fiskifélagsstjórninni um, samkv. ályktun
stjórnar félagsins 6. des. síðastliðinn yrði
Fiskiþing ekki haldið fyr en í sumar.
Erindreki Árni Gíslason átti og símtal
við lörseta Fiskifélagsins og tjáðist hann
þar halda fast við nefndarályktun stjórn-
arinnar. Eítir nokkrar umræður var í e.
hlj. samþykt að senda erindrekum fjórð-
unganna (Norðlendinga, Austfirðinga og
Sunnlendinga) svohlj. símskeyti:
»Höfum sent itrekaðar áskoranir til
Fiskifélagsstjórnarinnar um Fiskiþing í
febrúar, en hún neitað. Mótmælum Fiski-
þingi í sumar. Væntum áskorana úr fjórð-
ungi yðar tilstuðnings þinghaldsí febrúar«.
Ennfremur var samþykt að senda
Fiskifélagsstjórninni svohlj. simskeyti:
»HöIdum fast við áskorun um Fiski-
þing i febrúar. Berum fúslega fulltrúa-
kostnað héðan. Mótmælum Fiskiþingi í
sumar og munum ekki taka þátt i þvi.
Fjórðungsþing Vestfirðinga«.
XII. Samlag*kaup á veiðarfœrum. Samþ.
var að taka það mál á dagskrá og svo-
hljóðandi tillaga samþykt:
»Fjórðungsþingið skorar á Fiskiþingið
að vinda bráðan bug að því, að leitast
fyrir um kaup, frá góðum verksmiðjum
á ódýrari veiðarfærum en nú eru til i
landinu og helst svo fljótt að deildir hér
fái vitneskju um kaupin eigi siðar en í
febrúarmán. næstk«.
XIII Kosning Fjórðungsstjórnar. For-
seti kosinn:
Arngrimur F. Bjarnason með 6 alkv.
Ritari Kristjáu Jónsson frá Garðsstöð-
um með 6 atkv.
Varaforseli Árni Gíslason,
Vararitari Guðm. G. Kristjónsson; báð-
ir í einu hljóði
XIV. Kosning fulltrúa á Fiskiþing.
Aðalfulltrúar: Arngrimur F. Bjarnason
með 5 atkv. og
Kristján Jónsson með 4 atkv.
Varafulltrúar: Árni Gíslason með 5 at-
kvæðum og
Kristján Ásgeirsson verzlunarstjóri á
Flateyri með 4 atkv.
Samþykt var að halda næsta Fjórð-
ungsþing á ísafirði.
Fleiri mál komu ekki fyrir þingið.
Kristján Jónsson,
frá Garðsstöðum,
ritari.