Ægir - 01.01.1921, Blaðsíða 18
12
ÆGIR
Fjórðungsþing fiskideilda
i Austfirðingafjórðungi.
Ár 1920, fimludaginn 16. des. var fjórð-
ungsþing fiskideilda í Austfirðingafjórðungi
sett og haldið í Norðfirði. Til þingsins
liafði verið boðað þann 14., en vegna
óveðurs gátu fulltrúar ekki komist á þing-
staðinn fyrri,
Forseli fjórðungsþingsins, Ingvar Páls-
son, setti þingið og gat þess, áð tilefni til
að fjórðungsþing sé haldið nú, væri að
fiskideildir hér austanlands væru einhuga
um að fiskiþing yrði haldið í vetur, og
því hefði verið óhjákvæmilegt að fjórðungs-
þing væri haldið í þessum mánuði.
Þessir fulltrúar voru mættir:
Vilbjálmur Árnason fyrir Seyðisfjarðar-
deild.
Hermann Þorstcinsson fyrir Seyðisfjarð-
ardeild.
Sigurður Eiríksson fyrir Mjóafjarðardeild.
Lúðvfk Sigurðsson fyrir Norðfjarðar-
deiid.
Ingvar Pálsson fyrir Norðfjarðardeild.
Bjarni Sigurðsson fyrir Eskifjarðardeild.
Hinn fulltrúinn gat ekki mætt.
Bjarni Nikulásson fyrir Reyðarfjarðar-
deild.
Fulltrúar fyrir Fáskrúðsfjarðardeild gálu
ekki komist vegna óveðurs.
1. fundiir [16. des'.J.
Forseli selti þingið kl. IOV2 f. h. og
lagði fram svohljóðandi dagskrá.
1. Steinolíumálið.
2. Fjárhagsáætlun Fiskifél. íslands
3. Fiskimat.
4. Strandferðir.
5. Samvinnumál.
6. Strandvarnir.
7. Fólksráðning.
8. Vitamál.
9. Hafnarbætur.
10. Kosning fulltrúa á fiskiþingi.
11. Kosin stjórn fjórðungsþingsins.
Samþykt var að skipa tulltrúum í tvær
nefndir, 4 i aðra nefndina en 3 í hina, og
skifta svo málum milli þeirra nefnda. I
aðra nefndina voru kosnir þeir: Vilhjálm-
ur Árnason, Sig. Eiríksson, Lúðvík Sigurðs-
son og Bjarni Nikulásson.
í hina nefndina voru kosnir þeir: Ing-
var Pálmason, Hermann Þorsteinsson og
Bjarni Sigurðsson.
Málunum var því næst skift milli nefn-
anna þannig: Til 4ra manna nefndarinnar
var visað þessum málum: Steinolíumáli,
fiskimati, fólksráðningu og vitamáli.
Til 3ja manna nefndar var visað þess-
um málum: Fjárhagsáætlun, strandferðir,
samvinnumál, strandvarnir og hafnarbætur.
2. fundur /16. desj
Tekið var fyrir:
1. Steinolíumálið.
Nefndin, sem hafði málið tii meðferðar,
lagði fram svohljóðandi tillögu:
»Með því að komið hefur í ljós á þessu
ári hér austanlands að sjávarútvegurinn,
sem aðallega er rekinn af vélbátum, hefur
ekki borið sig, seni slafa mun að miklu
leyti af hinu afarháa verði á steinolíu,
skorar þvf fjórðungsþingið á stjórn Fiski-
félags íslands að beita sér fyrir þvi við
rfkisstjórn og alþingi að ráðið verði bót
á þessu máli hið bráðasta.«
Umræöur urðu miklar um málið og að
síðustu var samþykt svohljóðandi tillaga
frá Bjarna Sigurðssyni með breytingu frá
Herm. Þorsteinssyni. Tillagan sem sam-
þykt var varð því þannig:
»Með þvf að komið hefir í ljós hér
Austanlands að fiskiútvegur, sem aðallega
er rekinn með vélbátum, hefir eigi borið
sig, sem aðallega stafar af hinu afarháa